Viðskipti innlent

Yngsti bíla­sali landsins á láns­bíl frá mömmu

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Teitur Árni byrjaði að flytja inn bíla þegar hann var í menntaskóla og hefur nú, nítján ára gamall, opnað Bílskúrinn Bílasölu og hlýtur, þar til annað kemur í ljós, að mega teljast yngsti bílasali landsins.
Teitur Árni byrjaði að flytja inn bíla þegar hann var í menntaskóla og hefur nú, nítján ára gamall, opnað Bílskúrinn Bílasölu og hlýtur, þar til annað kemur í ljós, að mega teljast yngsti bílasali landsins. Vísir/Vilhelm

„Ég er enn að fá hingað fullt af fólki sem ætlar að fá sér ís,“ segir Teitur Árni Sigurðar­son, nítján ára at­hafna­maður sem var að opna bílasölu á Sel­tjarnar­nesinu þar sem ís­búðin Huppa var áður.

„Það er mjög fyndið hvað það koma enn margir hingað að leita að ís þannig að ég þarf eigin­lega bara að vera með frost­pinna hérna á bak við, þannig að fólk fari ánægt heim,“ segir Teitur Árni sem í síðustu viku opnaði bílasöluna Bílskúrinn við Austur­strönd á Sel­tjarnar­nesi.

„Ég veit eigin­lega ekki hvernig á að lýsa þessu en þetta small ein­hvern veginn bara allt bara svona full­kom­lega saman,“ segir Teitur Árni sem var á síðasta ári sínu í mennta­skóla þegar hann fór að fikra sig hægt og hljótt inn í bransann með inn­flutningi bíla frá Evrópu.

Svalur gaur í menntó

„Þá var ég mest í þessu bara fyrir sjálfan mig og það var gaman að vera alltaf á nýjum bílum sem ég seldi síðan alla með fínum hagnaði. Maður tók bara smá áhættu og fór svo bara á fullt í þetta og þannig varð þetta eigin­lega bara vinnan mín.“

Á meðan Teitur Árni var bíla­sali og inn­flytjandi sam­hliða skólanum skipti hann jafn ört um bíla og þeir sem hann var að nota seldust. „Sumir seldust fljótt, aðrir ekki, og ætli ég hafi ekki verið á nýjum bíl á svona þriggja mánaða fresti,“ segir hann og getur ekki neitað því að með því að birtast reglu­lega á nýjum kagga gæti hann hafa talist frekar svalur gaur í menntó. „Já, það mætti segja það.“

Yngstur á Ís­landi

Bílasöluævintýri mennta­skóla­nemans gekk það vel að Teitur Árni byrjaði í hálfu starfi hjá bílasölunni Drauma­bílum. „Síðan langaði mig bara ein­hvern veginn að gera þetta sjálfur og ákvað að opna mína eigin bílasölu. Þá fór ég að leita að stað­setningu og svo púslaðist þetta bara ein­hvern veginn svona saman hægt og ró­lega.“

Teitur Árni renndi hýru auga til Austur­strandarinnar þaðan sem ís­búð Huppu flutti ný­lega, um rétt rúman kíló­metra, úr póstnú­meri 170 yfir á Ægisíðu í 107.

„Ég þurfti pláss og hringdi í Orkuna sem á húsnæðið og fékk að vita að Huppa væri að færa sig og plássið væri laust í febrúar og opnaði svo bara í síðustu viku,“ segir Teitur Árni sem ætla má að sé yngsti bíla­sali landsins. „Ég veit um einn sem er ári eldri en ég hef ekki heyrt um neinn sem er yngri.“

Góð markaðs­stað­setning

Þótt ýmis rekstur, meðal annars blóma­verslun og ís­búð Huppu, hafi verið stundaður á blettinum við Austur­strönd í gegnum ára­tugina tengja flest hann lík­lega við bensínsölu.

Þar reistu Olís og Shell fyrstu bensínstöðina snemma á níunda ára­tugnum og ráku hana sam­eigin­lega þar til Orkan tók við dælunum og þannig má segja að með bíla­tengingunni haldi Teitur Árni ákveðinni sögu­legri sam­fellu.

„Fólkið á Nesinu er búið að vera dálítið for­vitið um hvað væri að koma hérna,“ segir Teitur Árni og því ljóst að stað­setningin hefur í sjálfri sér um­tals­vert markaðs­gildi. Bæði þar sem fólk leggur enn leið sína þangað í leit að Hupp­uís auk nokkuð al­menns áhuga Sel­tirninga á framtíð við­skipta við Austur­strönd 7.

Vinsælir pall­bílar

Teitur Árni byggir rekstur Bílskúrsins á grunninum sem hann lagði þegar hann var í mennta­skóla og leggur höfuðáherslu á inn­flutning bif­reiða frá Evrópu og Bandaríkjunum. Þar fyrir utan tekur hann, eins og vera ber, við notuðum bílum til endur­sölu.

Þvert á það sem ef til vill mætti ætla í ljósi reki­stefnu Bandaríkjanna í tollamálum segir Teitur Árni inn­flutninginn þaðan ganga smurt. „Ég hef alla­vega ekki fundið fyrir neinu. Þetta er ekkert flókið og mér finnst eigin­lega bara auðveldara að flytja inn frá Bandaríkjunum en Evrópu.“

Austurströnd 7 á Seltjarnarnesi er heppilegur staður fyrir Bílskúrinn hans Teits Árna en fyrir utan heilbrigða forvitni um nærumhverfi sitt leggur fólk enn leið sína þangað í ísbíltúrum.Vísir/Vilhelm

Teitur Árni segist flytja mest inn af raf­drifnum pall­bílum enda vinsældir þeirra miklar um þessar mundir og þá fær hann ein­mitt frá Bandaríkjunum. „Annars get ég svo sem alveg flutt inn hvað sem er; díesel og gamla kagga en raf­magns­bílarnir eru vinsælastir núna.“

Harður bransi

Teitur Árni segir sam­keppnina í bílasölunni vissu­lega harða enda margir um hituna. „Já, það er hörku sam­keppni. Ég veit ekki hvað bílasölurnar eru margar en þær eru örugg­lega eitt­hvað í kringum 30 á landinu en það er alla­vegana engin sam­keppni á Nesinu.“

Að­spurður segist hann aldrei hafa verið neinn sér­stakur bíla­dellu­kall og hann hafi miklu frekar farið út í þennan bransa ein­fald­lega vegna þess að hann er sölu­maður í eðli sínu.

„Mér finnst bara gaman að selja, finnst skemmti­legt að kynnast nýju fólki og bara al­mennt að tala við fólk,“ segir Teitur Árni sem, þrátt fyrir þennan eigin­leika, hefur enn ekki náð því að taka á móti mann­eskju í leit að ís og senda hana heim á nýjum bíl.

Bíl­lausi bíla­salinn

Bíla­salinn ungi stendur í ströngu á fleiri vígstöðvum því hann er einnig ungur faðir. „Ég er með lítinn tíu mánaða strák heima þannig að maður reynir sitt besta og að vera eins mikið og maður getur á báðum stöðum. Þótt maður sé ungur þá þarf maður ekkert að vera að missa vitið yfir því að vera ekki að djamma allar helgar eða vera ein­hver aumingi.“

Þú hefur átt frekar marga bíla, kannski frekar miðað við aldur en fyrri störf. Hvernig bíl ertu á núna?

„Heyrðu, ég á engan bíl eins og er. Ég er bara á láns­bíl frá mömmu,“ segir yngsti bíla­sali landsins sem situr einn að markaðnum á Sel­tjarnar­nesi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×