Skall með höfuðið í gólfið og fékk heilahristing Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 08:00 Victor Wembanyama hélt um höfuðið eftir að hafa skollið í gólfið. Getty/Ronald Cortes Hinn 22 ára gamli Victor Wembanyama skall illa með höfuðið í gólfið og varð að hætta leik með San Antonio Spurs þegar liðið tapaði naumlega gegn Portland Trail Blazers í nótt, í útsláttarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.
Eins og sjá má hér að neðan var Wembanyama að smjúga á milli varnarmanna Portland þegar hann missti jafnvægið og féll með höfuðið á undan sér í gólfið. Þar lá hann eftir grafkyrr og var svo nokkrar mínútur að jafna sig, áður en hann hljóp inn til búningsklefa. Victor Wembanyama (concussion protocol) is OUT for the remainder of the game after hitting his head on the court. pic.twitter.com/qP8tAf6osN— NBA on NBC and Peacock (@NBAonNBC) April 22, 2026 Eftir leik staðfesti San Antonio að Frakkinn hefði fengið heilahristing og þar með taka við ákveðin skref samkvæmt reglum NBA, áður en Wembanyama má spila aftur. Hann má ekki taka fullan þátt að nýju fyrr en í fyrsta lagi 48 tímum eftir meiðslin, þarf að verða algjörlega einkennalaus og ná ákveðnum áföngum í endurhæfingu áður en hann má spila að nýju. Læknir verður svo að gefa grænt ljós í samráði við fulltrúa deildarinnar. Ljóst er að um mikið áfall gæti verið að ræða fyrir San Antonio og Wembanyama sem á dögunum varð sá yngsti í sögunni til að verða valinn varnarmaður ársins, og sá eini sem fengið hefur fullt hús atkvæða. Wembanyama skoraði 35 stig þegar Spurs unnu 111-98 í fyrsta leik einvígisins við Portland en staðan er núna jöfn, 1-1. LeBron James kom Lakers í 2-0 Í einvígi LA Lakers við Houston Rockets eru Lakers hins vegar komnir í 2-0 eftir að hafa unnið 101-94 sigur í nótt. LeBron James fór fyrir liði Lakers og skoraði 28 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Annar reynslubolti, Kevin Durant, sneri aftur hjá Houston eftir að hafa misst af fyrsta leiknum og var stigahæstur liðsins með 23 stig. Hann tapaði boltanum hins vegar níu sinnum og skorað aðeins þrjú stig í seinni hálfleik.
NBA Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira