Dómaraskandall og augnpot: Hrafn getur bundið enda á áralanga baráttu sína gegn Bean Aron Guðmundsson skrifar 21. apríl 2026 16:16 Hrafn Þráinsson mun mæta Will Bean í bardagabúrinu í þriðja sinn, nú hér heima á Íslandi, í október. Árni Júl Langvinn barátta Hrafns Þráinssonar úr Reykjavík MMA og Bretans Will Bean í bardagabúrinu verður útkljáð á Glacier Fight Night 3, áhugamannakvöldi í blönduðum bardagaíþróttum í Framheimilinu seinna í ár.
Segja mætti að Hrafn og Will Bean eigi sér langa sögu í bardagabúrinu þar sem þeir hafa mæst í tvígang áður. Báðir bardagar þeirra hafa til þessa hafa endað með no contest úrskurði, það er engum sigurvegara. Þeim fyrri þó eftir að Hrafn hafði verið lýstur sigurvegari og fengið meistarabelti utan um sig. Ljóst er að mikil eftirvænting verður fyrir þessum þriðja bardaga Hrafns og Will Bean þar sem að baráttan milli þeirra verður endanlega útkljáð. Vísir fjallaði um mjög svo skringilega atburðarás í fyrsta bardaga þeirra á sínum tíma, sannkallaðan dómaraskandal þar sem Hrafn var sviptur meistarabelti eftir skrautlegan sigur. Hrafn og Bean mættust þar í titilbardaga í Doncaster á vegum Caged Steel þar sem að vítavert klúður tímavarðar gerði allt vitlaust og kvartanir Bean eftir að Hrafn hafði verið lýstur sigurvegari bardagans, skiluðu no contest dómi. Það er að hvorki Bean né Hrafn hefðu unnið bardagann. Kapparnir mættust svo aftur í lok ársins 2023 í bardaga sem var stöðvaður í annarri lotu eftir að Bean hafði potað í auga Hrafns sem gat ekki haldið keppni áfram í kjölfarið. Þríleikurinn verður fullkomnaður á Glacier Fight Night 3 bardagakvöldinu laugardaginn 3.október næstkomandi í Framheimilinu í Úlfarsárdal þar sem að Glacier Fight Night fór fram fyrir fullu húsi og í mikilli stemningu. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) Ekki hefur verið opnað fyrir forsölu en hægt er að skrá sig á póstlista til þess að fá upplýsingar um forsölu þegar dregur nær bardagakvöldinu. Þetta verður fyrsti bardagi Hrafns frá því að hann og Bean mættust í búrinu í seinna skiptið hingað til í desember árið 2023. Bean hefur aftur á móti barist einu sinni síðan þá, Bretinn laut þar í lægra haldið gegn samlanda sínum Laurence Charnock.
MMA Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjá meira