Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 10:01 Viktor Bjarki Daðason skorar hér sitt fyrsta mark í dönsku úrvalsdeildinni og var vel fagnað. @fc_kobenhavn Hinn 17 ára gamli Viktor Bjarki Daðason var hæstánægður eftir að hafa með laglegum hætti skorað sitt fyrsta mark í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær, eftir nokkuð erfiðan tíma að undanförnu.
Viktor Bjarki sló í gegn í haust þegar hann kom inn í aðallið FC Kaupmannahafnar og skoraði í sjálfri Meistaradeild Evrópu. Þar skoraði hann þrjú mörk, meðal annars gegn Dortmund og Barcelona, og auk þess fjögur mörk í dönsku bikarkeppninni. Markið gegn Vejle í gær var hins vegar fyrsta mark Framarans í dönsku úrvalsdeildinni. Þar hefur hann spilað 13 leiki, oftast sem varamaður líkt og í gær en þá spilaði Viktor hálftíma og skoraði fallegt mark í 4-1 útisigri. Markið hans má sjá hér að neðan. „Þetta hefur rosalega mikla þýðingu fyrir mig. Það tók langan tíma fyrir mig að skora fyrsta markið í dönsku úrvalsdeildinni svo ég er virkilega ánægður,“ sagði Viktor við Viaplay eftir sigurinn. „Tilfinningin er sérstaklega góð vegna þess að núna hef ég spilað minna í síðustu leikjum. Það hefur auðvitað verið svolítið erfitt fyrir mig,“ sagði Viktor en hann hafði setið á varamannabekknum í síðustu leikjum og ekki spilað með FCK síðan fyrir síðasta landsleikjahlé, fyrir um mánuði síðan. Hann steig sigurdans eftir leik. View this post on Instagram A post shared by F.C. København (@fc_kobenhavn) „Fyrst spilaði ég mikið en svo fór ég að spila aðeins minna. Svo það er bara gott að hafa náð að skora núna,“ sagði Viktor. Þetta var þriðji sigur FCK í röð og er liðið nú efst í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar, eftir að hafa um tíma hreinlega verið í fallhættu.
Danski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira