Klukkan tifar og enn langt í land Eiður Þór Árnason skrifar 19. apríl 2026 10:44 Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins. Getty/Morteza Nikoubazl Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“
BBC greinir frá þessu en Mohammad Bagher Ghalibaf sem er jafnframt helsti samningamaður Írans ítrekaði að ríkið stjórnaði Hormússundi. Hann hefur sagt að það séu „einungis“ eitt eða tvö atriði sem ósætti er um, án þess að tilgreina það nánar. Meðal annars hefur verið deilt um auðgun úrans. Írans á Lyse Doucet, fréttamaður BBC í Íran, segir fá merki um að friðarsamkomulag sé í vinnslu og ekki hafi verið tekin ákvörðun um að framlengja núgildandi samkomulag um vopnahlé. Íran lokaði Hormússundi í gær og var greint frá því að skotið hefði verið á skip í sundinu. Bandaríkjaher heldur hafnbanni sínu til streitu og hefur stöðvað eða snúið við skipum sem sigla til eða frá strönd Írans. Bandaríkjaforseti hefur sagt að aðgerðin haldi áfram þar til friðarsamkomulag næst. Rennur út á miðvikudag Írönsk yfirvöld segja hafnbannið brot á vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og ástæðuna fyrir því að Hormússundi var skyndilega lokað í gær, innan við sólarhring eftir að stjórnvöld í Teheran gáfu út að því yrði haldið opnu á meðan vopnahlé væri í gildi. Það rennur að óbreyttu út miðvikudaginn 22. apríl. Ein helsta forsenda samkomulagsins af hálfu Bandaríkjanna var að Hormússund yrði opið fyrir skipaumferð. Vopnahlé Ísraels og Líbanon er í gildi til 26. apríl en Íran, Bandaríkin og Ísrael eru ósammála um það hvort fyrra vopnahléið nái einnig til árása Ísraelshers á Líbanon. Íran taldi svo vera og sagði stöðvun árása Ísraels þar forsendu fyrir friðarviðræðum heima fyrir. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fjölmiðla í gær að stjórnvöld hefðu átt „mjög góð samtöl“ við Íran en hann myndi ekki láta Íran „kúga“ Bandaríkin með lokun Hormússunds. Bandaríkjastjórn bindur vonir við að hafnbann sitt setji efnahaglegan þrýsting á stjórnvöld í Íran og takmarki sölu á olíuútflutningi þess. Bandaríkjaher sagðist í gær hafa snúið við 23 skipum nærri Hormússundi frá því að aðgerðirnar hófust fyrir um viku. „Hafnbannið hefur fullkomlega stöðvað vöruflutninga sjóleiðina til og frá Íran,“ sagði í samfélagsmiðlafærslu Centcom, aðgerðarstjórnar Bandaríkjahers. Á sama tíma hefur BBC séð minnst fjögur skip komast hjá hafnbanninu á leið sinni frá írönskum höfnum. Þrír fallið í Líbanon Tveir hermenn hafa fallið í suðurhluta Líbanon eftir að vopnahlé tók þar gildi, að sögn ísraelska hersins. Einn hafi farist í sprengingu við hreinsun bygginga á föstudag og annar í ótilgreindu atviki þar sem níu aðrir voru fluttir á sjúkrahús. Staðarmiðlar segja að hermenn hafi ekið á jarðsprengju og rannsakað sé hvort henni hafi verið komið fyrir eftir tilkomu vopnahlésins. Þá féll franskur friðargæsluliði sem starfaði með bráðabirgðasveit Sameinuðu þjóðanna í Líbanon í árás sem Macron Frakklandsforseti kenndi Hezbollah um. Hópurinn hefur neitað ábyrgð. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum Hormússund sem er staðsett fyrir sunnan Íran en það hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Hefur þetta haft mikil áhrif á alþjóðahagkerfið og olíuverð en einnig er stór hluti hráefna í áburðarframleiðslu fluttur um svæðið. Hafa hjálparstofnanir því varað við hættunni á alvarlegum fæðuskorti.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Líbanon Ísrael Tengdar fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi. 18. apríl 2026 16:58 Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. 18. apríl 2026 11:26 Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46 Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42 Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Sjá meira
Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi. 18. apríl 2026 16:58
Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. 18. apríl 2026 11:26
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42