„Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. apríl 2026 10:10 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir fráfarandi oddviti Viðreisnar stefnir nú í Þingeyjarsveit. Vísir/Vilhelm Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fráfarandi oddviti Viðreisnar í Reykjavík, hefur samþykkt að vera sveitarstjóraefni L-lista framfara í Þingeyjarsveit. „
Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti ég að ég hygðist láta af störfum sem oddviti Viðreisnar eftir átta ár í borgarstjórn Reykjavíkur og leita nýrra áskorana. Nú hefur spennandi tækifæri bankað upp á og ég er bæði þakklát og spennt,“ skrifar Þórdís í færslu á Facebook. Hún segir að sér þyki afar vænt um Þingeyjarsveit en þar á fjölskylda hennar jörð og ættaróðal. Þar hafi hún dvalið nær öll sumur og meira og meira á veturna undanfarin ár auk þess að taka við störfum sem skógarbóndi, í ferðaþjónustu og leiðsögumennsku. „Þingeyjarsveitin, náttúran og samfélagið hafa mótað mig meira en ég geri mér líklega grein fyrir og hjarta mitt hefur lengi slegið fyrir sveitina mína. Ég hef starfað við stjórnun og rekstur sveitarfélaga í mörg ár, bæði sem kjörinn fulltrúi og sem stjórnandi. Sú reynsla nýtist vel, en það sem skiptir mig meira máli er trúin á öflug samfélög, tækifæri til uppbyggingar og mikilvægi þess að hlúa vel að fólkinu sem þar býr,“ segir Þórdís. Hlakki til að koma heim Í færslu L-listans segjast þau kynna með stolti að Þórdís Lóa, eða „Lóa í Víðum“ líkt og hún er kölluð, hafi samþykkt að vera sveitarstjóraefnið. „Þórdís Lóa býr yfir víðtækri og dýrmætri reynslu af stjórnun og rekstri sveitarfélaga, bæði sem oddviti í borgarstjórn undanfarin 8 ár og stjórnandi um árabil. Hún hefur í störfum sínum sýnt skýra sýn, festu í ákvarðanatöku og afburða samskiptahæfileika og getu til að leiða flókin verkefni til farsællar niðurstöðu,“ segir í tilkynningu L-listans. „Þórdís Lóa þekkir Þingeyjarsveit afar vel. Rætur hennar liggja í sveitarfélaginu, þar sem hún er frá Víðum í Reykjadal. Hún hlakkar nú til að flytja heim. Þekking hennar á svæðinu, fólkinu og þeim tækifærum sem þar felast er því bæði djúp og raunveruleg.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þingeyjarsveit Viðreisn Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Sjá meira