Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2026 07:01 Ágústa Edda Björnsdóttir varð amma um daginn og fékk meðal annars þennan búning að gjöf frá hlaupahópnum HHHC. Ágústa Edda hefur bæði verið handboltakona og hjólreiðakona ársins á Íslandi og nú ætlar hún að keppa fyrir Íþróttafélagið Hraða í hlaupum. @hhhcruns Nýjasta íþróttafélagið á Íslandi er Íþróttafélagið Hraði en félagið er stofnað í kringum hlaupahópinn HHHC.
Til þess að geta tekið þátt í Íslands- og meistaramótum þurfa keppendur að vera skráðir í löglegt íþróttafélag innan ÍSÍ og keppa í búningi félagsins. Forráðamenn hlaupahópsins hafa unnið að því í ár að sækja um aðild hjá UMSK, Ungmennasambandi Kjalarnesþings, en eitt af skilyrðum er að nafn félagsins falli vel að íslenskri málhefð, sem HHHC gerir ekki. Því var tekið upp nafnið Íþróttafélagið Hraði. Félagið hefur nú verið samþykkt og er orðið fullgilt félag innan UMSK. Félagið hefur hannað merki og búning merkt félaginu. Í framhaldinu hefur Íþróttafélagið Hraði boðið öfluga hlaupara velkomna „heim“ eins og þeir orða það á miðlum þess. Hlaupararnir fjórir sem keppa hér eftir fyrir Íþróttafélagið Hraða eru Þórólfur Ingi Þórsson, Ágústa Edda Björnsdóttir, Daníel Ágústsson og Jón Kristófer Sturluson. Þórólfur Ingi kemur heim frá ÍR en þeir Daníel og Jón Kristófer hafa keppt fyrir Breiðablik. Ágústa Edda var í landsliðinu í handbolta í rúm tíu ár og var valin handboltakona ársins 2006. Hún byrjaði í hjólreiðum 2015 þar sem hún vann marga Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitla. Hún var fyrsti Íslendingurinn til að keppa á HM í götuhjólreiðum og valin hjólreiðakona ársins þrjú ár í röð. Ágústa Edda byrjaði að hlaupa haustið 2024 en hún hefur keppt í götuhlaupum frá 5 kílómetrum upp í maraþon. Hún er Íslandsmeistari í aldursflokki í 10 kílómetra hlaupi en hefur líka keppt í ýmsum utanvegahlaupum. Það má finna meira um þessa hlaupara hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by HHHCRUNS (@hhhcruns)
Hlaup ÍSÍ Frjálsar íþróttir Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira