Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Eiður Þór Árnason skrifar 18. apríl 2026 11:26 Gervihnattarmynd af Hormússundi sem tekin var 7. apríl 2026. Getty/maps4media Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi.
BBC greinir frá en Reuters hefur eftir heimildarmönnum að minnst tvö kaupskip hafi orðið fyrir skothríð þegar þau reyndu að fara um sundið. Fyrirtæki tilkynnti UKMTO að gámaskip hafi orðið fyrir óþekktum kasthlut sem olli skemmdum á nokkrum gámum. Enginn eldur eða umhverfisáhrif voru tilkynnt atvikið er sagt hafa átt sér stað 25 sjómílur norðaustur af Óman. Nokkur skip fengu skilaboð frá íranska sjóhernum þar sem sagði að Hormússundi hefði verið lokað aftur, að því er heimildarmenn úr skipaiðnaðinum tjá Reuters. Íranski sjóherinn sagði áhöfnum olíuflutningaskipana að engum skipum væri heimilt að fara um sundið, bæta heimildarmennirnir við. Írönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan vopnahlé þeirra og Bandaríkjanna væri enn í gildi, eða til 22. apríl. Olíuverð lækkaði í kjölfarið en sundinu var svo skyndilega lokað aftur. Skotið á skipið þrátt fyrir heimild Skipagagnafyrirtækið TankerTrackers.com segist hafa undir höndum upptöku þar sem skipverji um borð í indversku olíuflutningaskipi fullyrðir að áhöfn hafi verið búin að fá heimild til að færa sig frá íranska sjóhernum áður en skotið var á þá. Flutningaskipið sé með tvær milljónir tunna af írakskri olíu um borð. “Sepah Navy! Motor Tanker Sanmar Herald! Sanmar Herald! Sepah Navy! You gave me clearance! You gave me clearance to go! Sepah Navy! Sepah Navy! This is motor tanker Sanmar Herald! You gave me clearance to go! My name second on your list! You gave me clearance to go! You are…— TankerTrackers.com, Inc. (@TankerTrackers) April 18, 2026 Írönsk stjórnvöld tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan vopnahlé þeirra og Bandaríkjanna væri enn í gildi, eða til 22. apríl. Olíuverð lækkaði í kjölfarið en sundinu var svo skyndilega lokað aftur. Íranskur ríkismiðill greindi frá því í morgun að herinn myndi loka Hormússundi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví sinni. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. Forsenda fyrir því sé að varanlegt vopnahlé náist á svæðinu. Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum Hormússund sem er staðsett fyrir sunnan Íran en það hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Hefur þetta haft mikil áhrif á alþjóðahagkerfið en einnig er stór hluti hráefna í áburðarframleiðslu fluttur um svæðið. Hafa hjálparstofnanir því varað við hættunni á fæðuskorti í þróunarríkjum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Tengdar fréttir Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46 Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42 Hormússundið opið á ný Hormússundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð samkvæmt utanríkisráðherra Írana og Bandaríkjaforseta. 17. apríl 2026 14:04 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. 18. apríl 2026 08:46
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. 17. apríl 2026 21:42
Hormússundið opið á ný Hormússundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð samkvæmt utanríkisráðherra Írana og Bandaríkjaforseta. 17. apríl 2026 14:04