Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Mig langaði ekkert í afsökunarbeiðni frá honum“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. apríl 2026 12:29 Auður Örlygsdóttir hefur tvisvar sinnum verið áreitt í Sundhöllinni. Auður Örlygsdóttir var sextán ára þegar hún lendir í því að fullorðinn maður gengur inn á hana nakta í útiklefa kvenna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Maðurinn hlýddi ekki skipunum um að yfirgefa klefan og var þar í um fimm mínútur á meðan hann strauk á sér kynfærin. Á mánudaginn, tveimur árum eftir fyrra atvikið, lendir hún í því að gengið er inn á hana aftur í inniklefa Sundhallar Reykjavíkur.
Hún gagnrýnir viðbrögð Sundhallarinnar í báðum atvikum og kallar eftir því að verkferlum verði breytt til að tryggja öryggi kvenna í sundi. Forstöðumaður sundlaugarinnar harmar atvikin sem hann segir hryllileg. Að hans sögn verður brugðist við þessu og seinna málið tilkynnt til lögreglu eftir helgi. Auður, sem er átján ára í dag, segir í samtali við fréttastofu að fyrra atvikið hafi markað djúpt spor í sálarlífi hennar. Það var í janúar 2024 sem leið hennar lá í Sundhöll Reykjavíkur. „Ég fer í sturtu og þá er maður kominn inn í klefann þegar ég er nýkomin í sturtuna. Hann segir fyrst bara „ó sorry“ og heldur smá fyrir augunum eins og hann hafi bara labbað óvart inn. Mér fannst þetta mjög óþægilegt. Hann felur sig í rauninni út í horni allan tímann. Þegar ég kíki svona til hans þá er hann líka að kíkja,“ segir Auður. „Stóð fyrir framan mig og bara starði á mig“ Hún hafi ítrekað beðið hann um að fara en maðurinn varð ekki við því og hélt áfram að ógna henni. „Hann byrjar bara að koma nær og nær og ég sé hann allan tímann í hliðarsjón. Þar byrjar hann að leika sér með kynfæri sín og þarna er ég stanslaust að biðja hann um að fara. Hann segir alltaf „sorrý, sorrý“ en fer aldrei. Svo ákveð ég bara að loka augunum í svona eina sekúndu og þá er hann kominn fyrir framan mig,“ segir Auður. „Hann brosti. Hann stóð fyrir framan mig og bara starði á mig. Hann var alveg upp við mig,“ segir Auður. Allt í allt var maðurinn inni í klefanum í fimm mínútur og á tímapunkti var hann kominn fyrir framan Auði og verulega nálægt henni. Maðurinn yfirgaf loks klefann eftir ítrekuð hróp og köll. Auður var aðeins sextán ára þegar að fullorðinn maður gekk inn á hana í sturtuklefanum.aðsend Auður lét þá starfsmenn sundlaugarinnar vita sem náðu í manninn sem var þá í inniklefanum ásamt barninu sínu. „Þá byrja ég strax að brotna niður og þegar maður grætur svona þá myndi ég halda að starfsmenn myndu fatta alvarleika málsins. Það koma fyrst tveir starfsmenn og þær sýna voða skrítin viðbrögð.“ Þáverandi forstöðumaður sundlaugarinna sagði þá manninum að biðja Auði afsökunar sem hágrét á meðan. „Þau ákváðu að setja hann fyrir framan mig sem er voða skrítið. Ég stend þarna náttúrulega bara náföl og hágrátandi. Ég vildi ekkert horfa á þennan mann. Mig langaði ekkert í afsökunarbeiðni frá honum, mig langaði bara að það væri eitthvað gert. Svo spyrja þau mig hvort ég vilji kæra hann. Ég segi við þau að ég sé sextán ára þarna og þegar eitthvað gerist við barn þá náttúrulega bara að hringja í strax í lögregluna,“ segir hún. Sundlaugin hringdi ekki í lögregluna og gekk maðurinn út ásamt barninu. Móðir Auðar hringdi síðar um kvöldið í lögregluna og var maðurinn dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í janúar á þessu ári. Sýnir enga virðingu Á mánudaginn gerist það aftur að gengið er inn á Auði í sturtu. Nú í inniklefa Sundhallarinnar. „Það labbar í rauninni maður inn og stendur þarna bara í góðar 30 sekúndur,“ segir hún. „Ég stóð þar bara nakin og fékk bara aftur svona viðbrögð þar sem ég fraus algjörlega.“ Hún segir manninn ekki hafa sýnt viðbrögð líkt og hann hafi gengið óvart inn í rangan klefa. Móðir Auðar hafi í kjölfarið hringt í Sundhöllina. „Þau brugðust alls ekki vel við, þau sögðu við mömmu mína að þau könnuðust ekkert við mál mitt og að þau hefðu ekkert til þess að gera fyrir hana,“ segir Auður. „Svo hringdi hún í yfirmann í Sundhöllinni en hann segist ekkert kannast við málið og að það þurfi ekki neinn starfsmaður að vera í útiklefanum. Hann sýnir í rauninni enga virðingu fyrir neinu sem ég hef lent í.“ Hún kallar eftir viðveru starfsmanna í klefum Sundhallarinnar. Of auðvelt sé að komast upp með kynferðislega áreitni, sérstaklega í útiklefanum. „Ég vil bara að engin önnur þurfi að lenda í þessu sem ég þurfti að lenda í,“ segir Auður en hún tjáði sig um málið á TikTok og hefur myndskeiðið vakið gífurlega athygli. Hún tekur fram að hún hafi birt myndskeiðið í þeirri von að eitthvað breytist og með það fyrir stafni að koma í veg fyrir frekari atvik. @audur29 Langaði að deila minni sögu, ég vona svo innilega að eitthvað fari að breytast og að það verði tekið betur á þessu❤️ #ísland #fyp ♬ original sound - Audur Leiti til lögreglu eftir helgi Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur, harmar atvikin í samtali við fréttastofu. Verkferlar verði endurskoðaðir. „Okkur finnst þetta náttúrulega bara hræðilegt og við finnum svo mikið til með henni. Við þurfum líka að skoða hvernig við getum brugðist betur við til að tryggja að þetta gerist ekki,“ segir Snorri. Er búið að tilkynna þetta mál til lögreglu sem kom núna upp? „Nei, það verður tilkynnt núna eftir helgina. Við vorum að safna saman öllum upplýsingum sem við getum safnað saman til þess að tilkynna þetta áfram. Þannig að við komum málinu í réttan farveg strax í byrjun,“ segir Snorri.
Sund Sundlaugar og baðlón Lögreglumál Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sjá meira