Hormússundi lokað á ný Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. apríl 2026 08:46 Hormússundi hefur verið lokað á ný. Getty Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar.
Í gær tilkynnti Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, með færslu á X að nú væri opið fyrir umferð um Hormússund „þann tíma sem eftir er af vopnahléinu“. Bandaríkin, Ísrael og Íran samþykktu tveggja vikna vopnahlé sem lýkur 22. apríl. Þó var í raun ekki um að ræða algjöra opnun heldur kynntu Íranir ákveðna leið um sundið. Nú í morgun greinir BBC frá því að Íranir ætli að loka sundinu á ný. Vísað er í íranska ríkisfjölmiðla sem fjalla um yfirlýsingu Íranska byltingarvarðarins sem sakar bandarísk stjórnvöld um sjóhernað. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR BBC greindi frá því að í gærkvöldi hafi eitt skemmtiferðaskip komist leiðar sinnar eftir að hafa verið fast í höfn Dúbaí í 47 daga. Hormússund er sunnan Íran og hefur meira og minna verið lokað frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í febrúar. Um fimmtungur af olíuframleiðslu heimsins og fljótandi gasi er jafnan flutt í gegnum sundið. Bandaríski sjóherinn segist hafa snúið 21 skipi við á meðan herkvíin hefur verið í gildi. Íranar hafa hins vegar mótmælt herkvínni og sagði Mohammad Bagher Ghalibaf, þingmaður og formaður nefndar Írans sem hefur rætt við Bandaríkin undanfarið, að haldi herkvíin áfram muni Íranir loka sundinu á ný. Trump logið ítrekað Donald Trump Bandaríkjaforseti gladdist mjög yfir þessum fregnum en tilkynnti strax að þrátt fyrir að opið væri fyrir umferð um sundið væri herkví Bandaríkjanna við strendur Íran enn í gildi. Hann fór í fjölda viðtala í gær og sagði meðal annars að Íran hefði samþykkt allar kröfur Bandaríkjanna, þar á meðal að hætta úranauðgun fyrir kjarnorkuvopnaframleiðslu, og að ríkin væru mjög nálægt því að ná friðarsamkomulagi. „Við erum að fara inn í Íran hægt og rólega og förum niður og byrjum að grafa upp stóru vélarnar,“ sagði Trump í viðtali við Reuters. „Við förum með þetta til Bandaríkjanna.“ Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir hins vegar ekkert til í staðhæfingum Bandaríkjaforseta. Hann ávarpaði írönsku þjóðina í sjónvarpsútsendingu og sagði að flutningur úransins til Bandaríkjanna hefði ekki verið tilkynntur sem valmöguleiki og það yrði ekki gert. Mohammad Bagher Ghalibaf, formaður nefndar Írans sem hefur rætt við Bandaríkin undanfarið, segir Trump hafa logið hvað eftir annað. „Forseti Bandaríkjanna setti fram sjö staðhæfingar á einni klukkustund, allar sjö voru lygar,“ skrifaði Ghalibaf í færslu á X. „Bandaríkin hafa ekki unnið stríðið og þau munu ekki komast neitt áfram í samningaviðræðum með þessar lygar.“
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skipaflutningar Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira