Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar 17. apríl 2026 11:47 Þegar ég horfi til baka yfir áratugbaráttu gegn sinnuleysi, óréttlæti, fáfræði og ofbeldi gagnvart samkynhneigðum og öðru fólki sé ég að sagan er nú sögð á annan hátt en hún gerðist. Það er eðlilegt að hver kynslóð hafi sína sýn, en þegar staðreyndir víkja fyrir þægilegri frásögn er verið að endurskrifa söguna. Ég hef frá barnsaldri litið á lífið sem leiksvið. Sem leiksviðslistamaður lærði ég að hugsa í ferlum: að skapa rými, skipuleggja, setja tón og vera til staðar. Fyrir mér er engin skýr lína á milli listar og aðgerða. Í leikhúsinu hefur hver sýning sitt upphaf, þróun og endi. Ég hef yfirfært þá hugsun á samfélagið. Mótmæli og opinber tjáning eru lifandi atburðir þar sem meginatriðið er ekki niðurstaðan, heldur ferlið: hvaða hreyfingu þau setja af stað og hvaða rými þau skapa. Mér hefur lengi verið ljóst að leið stofnanaleikhússins og leið skemmtikrafta til vinsælda byggja oft á því að láta fólki líða vel og staðfesta það sem það þegar trúir. En leikhúsið hefur líka annað hlutverk: að vekja spurningar, óþægindi og vangaveltur sem sjaldnast njóta vinsælda í upphafi, en geta með tímanum orðið hluti af almennu viðhorfi og breytt því hvernig við sjáum heiminn. Sýnileiki er ekki valkostur - hann er nauðsyn. Þegar ég steig fram opinberlega sem samkynhneigður maður þann 1. ágúst 1975 var ég fyrsti Íslendingurinn í sögu þjóðarinnar til að gera slíkt. Það þótti ósvífni, jafnvel glæpur í augum margra. En þetta var ekki persónuleg játning, heldur pólitísk athöfn. Þögnin sem ríkti gagnvart hinseginleikanum var ekki hlutlaus; hún var virk útilokun. Að rjúfa hana var inngrip í samfélag sem hafði valið að líta undan, og slíkum gjörningi fylgdi andstaða. Á þeim tíma lifði fólk í felum, við skömm og stöðuga hættu á að missa allt. Ég var þjóðþekktur listamaður sem lifði við þrýsting, einelti og ógn. Ég stóð frammi fyrir vali: að þegja eða tala. Ég valdi að tala. Afleiðingarnar voru raunverulegar. Ég missti tækifæri, var settur til hliðar í mínu fagi og neyddist til að flytja erlendis vegna hótana og þrýstings. Ég hef einnig þurft að lifa við mikinn mótgang, andstyggð og róg pólitískra andstæðinga og fylgisfiska þeirra. Þetta var hluti af þeim veruleika sem fylgdi því að stíga fram á þessum tíma, þegar sýnileiki hafði skýrt samfélagslegt verð. Að setjast við borð mennskunnar og horfast í augu við kjarna hennar, í orðum og athöfnum, hefur sjaldan verið áhættulaust. Mín dirfska hefur falist í því að gera það engu að síður. En með því að gera hið ósýnilega sýnilegt varð til rými þar sem áður var ekkert. Fólk gat séð manneskju þar sem áður var þögn.Það dugði þó ekki eitt skref. Breytingar verða sterkastar ef fleiri taka þátt í þeim. Ég stóð fyrir stofnun baráttusamtaka og smám saman varð til hreyfing þar sem fleiri bættust við. Þröngur stígur varð að sýnilegri breiðgötu. Ég hef oft byrjað einn vegna þess að breytingar bíða ekki eftir leyfi. Hlutverk mitt hefur verið að opna rými þar sem aðrir geta stigið inn og fundið sína eigin rödd. Að skapa rými er pólitísk athöfn. Síðar þegar fólk safnaðist saman eftir bankahrunið og krafðist ábyrgðar varð til rými vegna þess að einhver steig fram. Þannig byrja breytingar: ekki þegar allir eru sammála, heldur þegar einhver neitar að þegja. Í dag er stundum talað eins og þessi þróun hafi gerst af sjálfu sér. Það er einföldun sem afmáir átök og áhættu. Saga án mótstöðu er ekki saga - hún verður að friðþægingu. En friðþæging fyrir hverja? Sumir hafa sagt að ég hafi tekið mér of mikið pláss. En sagan er ekki mín ein. Hún er samofin framlagi margra. Ég á hins vegar minn sess í henni vegna þess sem ég gerði þegar mest á reyndi: ég steig fram og rauf þögnina, einn míns liðs, því annað bauðst ekki í stöðunni. Samfélag verður að þola spurningar og skapa þeim rými - því í því rými verður til sú hreyfing sem breytir því hvernig við sjáum okkur sjálf.Ég hef ekki kynnst baráttu sem lýkur, aðeins baráttu sem breytir um form, og hún lifir áfram í nýjum kynslóðum og nýjum aðstæðum þar sem sama þörfin birtist á ný: að rjúfa þögn og gera manneskjuna sýnilega. Ef frelsi þýðir eitthvað, þá er það að hugsa, tala og horfast í augu við veruleikann - án leyfis. Höfundur er leiksviðslistamaður og áhugamaður um betra samfélag. Skrifað í Reykjavík - Seoul - Taipei - Cairo - Prag - Kaupmannahöfn, 2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar