Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. apríl 2026 07:03 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist gegn þrettán ára dreng með ofbeldi eftir að drengurinn og félagar hans gerðu dyraat á heimili mannsins.
Atvikið átti sér stað sumarið 2022, þegar hópur drengja var að leika sér að því að fara á milli húsa og gera dyraat. Atvik voru í stuttu máli með þeim hætti að drengirnir fóru að húsi mannsins, börðu eða spörkuðu í dyr hússins og höfðu sig á brott. Manninum og konu hans brá við hávaðann og hljóp maðurinn út til að freista þess að hafa upp á hinum óprúttnu aðilum. Hann fann þá ekki í fyrstu en varð var við þá þegar hann kom aftur að húsinu og réðst að einum þeirra. Ákærði varð tvísaga um atvik, hjá lögreglu annars vegar og fyrir dómi hins vegar, en hann játaði að hafa neytt áfengis í veislu fyrr um daginn og eftir að hann kom heim. Fyrir dómi sagðist hann hafa gripið í öxl drengsins en við skýrslutöku hjá lögreglu var framburður hans samhljóma framburði drengsins, sem sagði manninn hafa tekið sig hálstaki. Aðilum bar saman um að maðurinn hefði fellt drenginn í jörðina. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði veist að drengnum með ofbeldi. Framburður mannsins fyrir dómi hefði ekki samræmst framburði hans hjá lögreglu en drengurinn hins vegar verið staðfastur og trúverðugur í framburði sínum. Þá hefði drengurinn sýnt varfærni í framburði sínum fyrir dóminum og ekki viljað fullyrða um annað en það sem hann mundi vel, fjórum árum síðar. Það að drengurinn hefði verið að gera dyraat réttlæti á engan hátt þá valdbeitingu sem hann var beittur og þá sé fráleitur sá málatilbúnaður mannsins að honum hafi stafað ógn af drengnum og félögum hans, sem hefðu ítrekað beðist afsökunar og beðið manninn um að sleppa félaga sínum. Það var talið manninum til málsbóta að hann væri með hreinan sakaferil og að meðferð málsins hefði dregist, bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Var hann, sem fyrr segir, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða drengnum 300.000 krónur í miskabætur.
Dómsmál Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira