Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar 16. apríl 2026 22:02 Að banna eitthvað þýðir að leyfa það ekki. Það er bannað að reykja á skólalóðum, að snerta boltann með höndunum í fótbolta og að keyra á göngugötum. Það að þessir hlutir séu bannaðir þýðir að ef þú reynir að gera þá þá mun einhver koma og reyna að hindra þig í þessu bannaða atferli eða refsa þér fyrir það. Þegar ég var barn var mér bannað að eiga byssuleikföng; móðir mín kom í veg fyrir það að ég eignaðist slíka gripi. Annar hlutur sem ég fékk heldur ekki á mínu bernskuheimili var grjónagrautur, en mér var samt ekki bannað að borða hann, mamma bara valdi að elda hann ekki því henni fannst hann vondur. Ólíkt byssubanninu fól þessi grjónagrautarskortur ekki í sér neina frelsisskerðingu. Mér var fullkomlega frjálst að borða eins mikið af grjónagraut og ég vildi, ég þurfti bara að fá einhvern annan til þess að elda hann handa mér, en þar komu ömmur og skólamötuneyti sterk inn. Og talandi um skólamötuneyti: Það stendur ekki til að banna skólabörnum í Reykjavík að borða unnar kjötvörur; Reykjavíkurborg hefur ákveðið að gefa nemendum í leik- og grunnskólum eitthvað annað að borða. Borgin hefur ekki heldur bannað börnum að fá sér McDonalds hamborgara, froskalappir eða tvöfaldan espresso, en borgin hefur ákveðið, meðvitað eða ómeðvitað, að gefa nemendum leik- og grunnskóla eitthvað annað að borða og drekka. Það að borgin taki ákvarðanir um matinn sem er boðið upp á í skólamötuneytum borgarinnar er hvorki bann, frelsisskerðing né forræðishyggja, það er bara eðlilegur hluti af því að reka mötuneyti. Sem faðir barns í reykvískum leikskóla finnst mér það alltaf jákvætt ef að ákveðið er að gera matinn í skólum borgarinnar hollari. Ég furða mig á framferði hægri flokkana í þessu máli, sem láta eins og einhvers konar illmenni frá Latabæ sem geta ekki hugsað sér neitt verra en að börn séu látin borða hollan mat. Ég held samt ekki að þau séu í alvörunni svo vitlaus að þau skilji ekki muninn á því að banna unnar kjötvörur og að borgin velji að hafa eitthvað annað í matinn. Ég hef þau hins vegar grunuð um að halda að kjósendur séu það vitlausir að þau skilji ekki muninn. Höfundur skipar 6. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Reykjavík Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar