Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 11:02 Stuðningsmenn Brann hafa ekki haft tíma til að tala um slæmt gengi liðsins því það snýst allt um trommur þessa stundina. Christian Bruna - UEFA/UEFA via Getty Images Þó lærisveinar Freys Alexanderssonar hjá Brann hafi farið afleitlega af stað á tímabilinu eru stuðningsmenn liðsins með einbeitingu við allt annað mál. Þeir hnakkrífast nú um hvort trommur eigi að vera leyfilegar í stúkunni.
Brann hefur tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins og tapaði 0-1 um helgina á heimavelli gegn Sandefjord. Eftir þann leik hefur umræðan ekki snúist um slaka spilamennsku liðsins, heldur slaka frammistöðu stuðningsmanna í stúkunni. Brann er nefnilega nýbúið að leyfa trommur á leikvanginum og hörðustu stuðningsmennirnir, í „Store Stå“ stúkunni, spila nú á slagverk sér til skemmtunar. Aðrir stuðningsmannahópar hafa hins vegar tekið mjög illa í þessa breytingu. Baul mátti heyra í hvert skipti sem trommukjuðinn var mundaður um helgina. Stemningin var því engin og leikmenn fengu lítinn sem engan stuðning í tapleiknum gegn Sandefjord. Orðum er ekki ofaukið með því að segja að þetta sé heilmikið tilfinningamál hjá stuðningsmönnum Brann. Eiginlega alveg ótrúlega mikið miðað við umfjallanir norskra fjölmiðla. Norska ríkisútvarpið ræddi við stuðningsmann, sem sagðist snortinn og leiður yfir stöðunni: „Allir í Store Stå hafa alltaf sungið: „Við erum Brann, við munum brjóta trommuna.“ En núna erum við allt í einu með trommur… Það er fólkið frá Björgvin sem er raunverulega stemningin. Það er það sem hverfur með trommuslætti, hið ósvikna. Með trommu verður stemningin falskari,“ sagði stuðningsmaðurinn. Tromman fræga sem stuðningsmenn Brann eru að rífast um. Bergens Tidende / Verdens Gang Engin lausn í sjónmáli Framkvæmdastjóri Brann skrifaði opið bréf til stuðningsmanna þar sem hann lýsti yfir miklum áhyggjum af málinu og blés til neyðarfundar með hinum ýmsu stuðningsmannahópum Brann. Neyðarfundurinn spannaði marga klukkutíma og var haldinn í gærkvöld. Engin niðurstaða náðist þar og lausn á málinu virðist ekki vera í sjónmáli. Framkvæmdastjórinn vildi ekki segja hvort trommur yrðu leyfðar á næsta leik Brann.
Norski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira