Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar 16. apríl 2026 10:47 Aukin orkuöflun og ábyrg nýting auðlinda eru ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda lífsgæða, samkeppnishæfni og verðmætasköpunar til framtíðar. Við heyrum daglega um aukna eftirspurn eftir grænni orku, orkuskipti, uppbyggingu gagnavera, ný tækifæri í atvinnulífi og stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni. En við getum ekki talað um verðmætasköpun án þess að tala um orku. Orkuveitan hefur sett fram metnaðarfulla fjárfestingaráætlun til næstu fimm ára. Við ætlum að fjárfesta fyrir um 230 milljarða króna til ársins 2030 í verkefnum sem tryggja orkuöryggi, styrkja innviði samfélagsins og skapa ný tækifæri í orku og loftslagslausnum. Þegar fólk heyrir svona tölu hugsar það oft um eina virkjun eða eitt stórt verkefni en raunveruleikinn er allt annar. Þetta eru hundruð verkefna sem saman byggja upp orkukerfið og innviði samfélagsins. Þar undir falla nýjar vinnsluholur og niðurdælingarholur, viðhald og efling veitukerfa, uppbygging fyrir orkuskipti og nýsköpunarverkefni sem miða að betri nýtingu auðlinda. Þetta eru verkefni sem sjást sjaldan í fyrirsögnum en halda samfélaginu gangandi á hverjum degi. Samstarf um virkjun við Hagavatn Við stöndum líka á mjög áhugaverðum tímapunkti í orkuöflun. Fyrstu rannsóknarboranir í Meitlum á Hellisheiði hafa gefið afar jákvæð merki og komið hefur í ljós 270 gráðu hiti í miklu magni. Það getur reynst verulegt framlag til framtíðar og bætt lífsgæði okkar til muna. Samhliða þessu horfum við einnig til næsta skrefs í nýtingu jarðhita, djúpborunar. Þar er verið að leita niður á mun meira dýpi en áður, í átt að allt að 400–500 gráðu heitum auðlindum sem gætu gjörbreytt bæði afköstum og nýtingu jarðhitasvæða. Þetta er tæknilega krefjandi og felur í sér meiri áhættu, en ávinningurinn getur orðið margfaldur á við hefðbundnar lausnir. Djúpborun er því ekki aðeins rannsóknarverkefni heldur lykill að því að auka orkuöflun án þess að stækka fótspor okkar á yfirborði. Við sjáum einnig spennandi möguleika í vatnsafli og höfum þegar stigið fyrstu skrefin í samstarfsverkefnum um þróun á nýjum virkjanakostum. Orkuveitan hefur gengið til samstarfs við Íslenska Vatnsorku, sem heldur á virkjunarkostinum við Hagavatn í sunnanverðum Langjökli. Virkjunarkosturinn er Orkuveitunni að góðu kunnur, enda handhafi rannsóknarleyfis frá 2006 til 2011. Hagavatnsvirkjun er mjög álitlegur kostur og fellur vel að markmiðum Orkuveitunnar um nýtingu auðlinda í sátt við umhverfið og verður mikilvæg viðbót við aðra raforkuframleiðslu okkar. Farið verður í uppbyggingu Hagavatnsvirkjunar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá höfum við einnig verið að skoða vindorkukosti og hófum mælingar við Dyraveg í Ölfusi í ágúst 2025. Þessar mælingar hafa gefið mjög jákvæðar vísbendingar um vindauðlind svæðisins. Þrátt fyrir að mælingar sem safnað hefur verið séu enn á tiltölulega skömmu tímabili sýna fyrstu niðurstöður stöðugan og álitlegan vindhraða. Frekari gagnaöflun og úrvinnsla mun skýra betur raunhæfa framleiðslugetu og hagkvæmni svæðisins. Samfélagið styður aukna orkuöflun Samfélagið virðist líka skilja þetta vel. Í könnun sem Gallup vann fyrir Orkuveituna telja um 71% almennings að áform okkar um auðlindanýtingu séu mikilvæg til að skapa verðmæti fyrir samfélagið. Hjá fyrirtækjum er stuðningurinn enn meiri, um 75%. Stuðningurinn er stöðugur þvert á atvinnugreinar, stærðir fyrirtækja og landshluta. Fólk sér tengslin milli orkuvinnslu, nýsköpunar, lífskjara og framtíðar Íslands. Það er ekki að undra. Íslensk heimili greiða aðeins brot af því sem nágrannaþjóðir okkar greiða fyrir húshitun. Íbúar í Svíþjóð, Noregi og Danmörku greiða tvöfalt það sem íslensk heimili greiða og í Finnlandi er munurinn enn meiri. Við megum ekki gleyma því að við erum í einstakri stöðu. Þetta er afrakstur ákvarðana fyrri kynslóða um að nýta auðlindir af ábyrgð til hagsbóta fyrir samfélagið. Ég lít svo á að okkur sem treyst er fyrir þessum auðlindum beri skylda til að tryggja og viðhalda þessari stöðu fyrir komandi kynslóðir. Það er er einmitt þess vegna sem við hjá Orkuveitunni höfum sett aukna orkuöflun svo rækilega á dagskrá. Ristastórt efnahagasmál fyrir Ísland Það liggja líka gríðarleg tækifæri í betri nýtingu. Ef okkur tekst til dæmis að blanda saman heitu vatni úr tveimur áttum með þeim hætti sem nú er verið að rannsaka innan Orkuveitunnar gæti það bætt nýtingu um allt að 30%. Slíkt væri ekki aðeins tæknilegur áfangi heldur risastórt efnahagsmál fyrir þjóðina. Það sama má segja um nýtingu glatvarma á Grundartanga, þróunnar á hátækni sorpbrennsluveri með SORPU, frekari þróun Carbfix, djúpnýtingu jarðhita og fleiri verkefni sem við erum að skoða innan Orkuveitunnar. Til þess að svona hlutir geti orðið að veruleika þarf þó meira en vilja og þekkingu innan fyrirtækjanna. Það þarf líka umhverfi sem styður við framþróun. Það sem er undir er ekki aðeins arðsemi einstakra verkefna eða fjárfestingaráform Orkuveitunnar. Það sem er undir eru lífsgæði komandi kynslóða. Spurningin er því ekki hvort við getum skapað þau verðmæti sem til þarf. Spurningin er hvernig við ætlum að gera það, með orkunni sem skapar verðmæti. Höfundur er forstjóri Orkuveitunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Mest lesið Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun