„Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. apríl 2026 07:32 LaMelo gekk glaður af velli eftir að hafa sett sigurskotið niður en hefði átt að henda honum út úr húsi í fyrri hálfleik? Jacob Kupferman/Getty Images Tímabilið endaði með versta hætti fyrir Bam Adebayo, sem fór meiddur af velli eftir að hafa verið sópað í gólfið af LaMelo Ball. Miami Heat tapaði fyrir Charlotte Hornets með einu stigi og er úr leik í NBA deildinni á þessu tímabili.
Atvikið átti sér stað snemma í öðrum leikhlutanum. LaMelo féll þá til jarðar eftir að hafa keyrt á körfuna en tók Bam Adebayo með sér. Ekkert brot var dæmt, þó LaMelo hafi klárlega fellt hann eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan. Is this a dirty play by LaMelo? pic.twitter.com/tPebBPDLDC— NBACentral (@TheDunkCentral) April 15, 2026 Erik Spoelstra, þjálfari Miami Heat, var skiljanlega ósáttur með að missa af velli miðherjann sem skoraði 83 stig í einum leik um daginn. Spoelstra segir um augljóst brot að ræða. „Mér finnst þetta ekki krúttlega og mér finnst þetta ekki fyndið. Mér finnst þetta heimskulegt brot og hættulegt. Við missum besta leikmanninn okkar út. Ég er ekki að búa til afsakanir, Hornets spiluðu frábærlega og lokuðu þessum leik. Við fengum okkar tækifæri til að vinna en nýttum þau ekki og það er synd. Mér finnst þetta bara ekki eiga heima í leiknum, að fella menn svona til jarðar eða vera með einhverja stæla… Það verður einhver dómari að taka eftir þessu. Þeir hefðu átt að henda honum [LaMelo Ball] út úr húsi fyrir þetta,“ sagði Spoelstra á blaðamannafundi eftir leik. Erik Spoelstra on LaMelo Ball tripping Bam Adebayo:“I don't think it's cute, I don't think it's funny, it's a dangerous play ... He should be penalized for that ... Somebody's got to see that. He should've been thrown out of the game for that."pic.twitter.com/EXEOTzG3nG— Underdog NBA (@UnderdogNBA) April 15, 2026 LaMelo Ball baðst afsökunar á atvikinu eftir leik og sagðist ekki hafa gert þetta viljandi. „Ég biðst afsökunar fyrir þetta. Ég var sleginn í hausinn og vissi varla hvar ég væri þarna. Ég mun athuga með hann, hvort það sé ekki allt í góðu,“ sagði LaMelo. LaMelo Ball stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa sett niður skot sem vann leikinn fyrir Charlotte Hornets, 127-126 gegn Miami Heat. Hornets munu mæta tapliðinu úr einvígi Philadelphia 76ers og Orlando Magic í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. HORNETS ELIMINATE HEAT IN INSANE OT ENDING 🤯🤯🚨CHARLOTTE ADVANCES TO NEXT ROUND OF PLAY-IN 🔥 pic.twitter.com/IqYf8BfBbO— Bleacher Report (@BleacherReport) April 15, 2026
NBA Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira