„Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2026 09:31 Garðar Ingi Sindrason í leik gegn Haukum fyrr á tímabilinu. Liðin berjast nú um sæti í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. vísir/diego Garðar Ingi Sindrason er að leika sína síðustu leiki fyrir FH, allavega í bili. Hann hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach og gengur í raðir þess í sumar.
FH tók forystuna í einvíginu gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildar karla með sigri í þriðja leik liðanna, 27-23, í gærkvöldi. Garðar segir eilítið sérstakt að spila leikina í úrslitakeppninni, vitandi að þeir verði hans síðustu fyrir FH í bili. „Tilfinningin er svolítið sérstök. Það er erfitt að kveðja uppeldisfélagið en þetta hefur alltaf verið markmiðið, að fara út, þannig að það verður auðvitað erfitt og skrítið en ég ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra,“ sagði Garðar í samtali við íþróttadeild. Garðar hefur verið í stóru hlutverki hjá FH undanfarin tvö tímabil og meðal annars spilað með liðinu í Evrópudeildinni. Á síðasta tímabili mætti FH meðal annars Gummersbach, verðandi vinnuveitendum Garðars. En kom tækifærið að fara í svona stórt félag fyrr en hann bjóst við? „Ekkert samkvæmt neinu plani eða einhverju. Þetta kom bara og maður verður að stökkva á það,“ svaraði Garðar. Gummersbach hefur verið í stöðugri sókn síðan Guðjón Valur Sigurðsson tók við liðinu 2020. Gummersbach er í 4. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og hefur verið á góðri siglingu síðustu vikurnar. Strákarnir hans Guðjóns Vals hafa unnið tíu deildarleiki í röð, eða alla leikina í þýsku úrvalsdeildinni á árinu 2026. Garðar hlakkar skiljanlega til að fara til svona sterks liðs. „Já, algjörlega. Þetta er frábært lið og það eru bara ógeðslega spennandi tímar framundan. Ég er gríðarlega spenntur,“ sagði Garðar en tveir Íslendingar leika núna með Gummersbach; Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson.
Olís-deild karla FH Þýski handboltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira