KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Aron Guðmundsson skrifar 14. apríl 2026 12:02 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er lykilleikmaður í KR liðinu. Vísir/Pawel Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, segir sitt lið ekki tilbúið í að fara í sumarfrí. KR er með bakið upp við vegg fyrir leik á heimavelli gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar þar í úrslitakeppni Bónus deildarinnar í körfubolta þar sem ekkert annað en sigur dugir KR til þess að halda lífi í keppninni.
Stjarnan komst 2-1 yfir í einvígi liðanna með öruggum sigri á heimavelli á dögunum. Framundan er leikur fjögur í einvíginu en liðin hafa unnið heimaleiki sína til þessa. Með sigri í kvöld sendir Stjarnan, KR í sumarfrí og tryggir sér sæti í undanúrslitum en sigur heimamanna í Vesturbænum knýr fram oddaleik. „Við þurfum að sigra og erum bara spenntir,“ segir Jakob Örn, þjálfari KR í samtali við Vísi. „Við erum að fara spila á heimavelli fyrir framan troðfulla Meistaravelli. Það er mikilvægt að átta sig á því. Við verðum að njóta þess að fá svona stóra leiki. Það er alveg klárt að við ætlum að lengja seríuna. Koma þessu í oddaleik.“ Jakob Örn, þjálfari KR.Vísir/Pawel Heimavöllurinn gefi KR-liðinu mikið. „Það sýndi sig í leik tvö í þessu einvígi. Það var gríðarlega góð stemning á Meistaravöllum. Rosalega góður stuðningur sem við fengum í þeim leik. Og í raun hefur þetta verið þannig hjá okkur í allan vetur. Það er alveg klárt að spila á heimavelli, fyrir framan troðfulla höll, er eitthvað sem gefur okkur rosalega mikinn kraft og sjálfstraust. Við höfum verið mjög erfiðir við að eiga á heimavelli. Ég er bara mjög bjartsýnn.“KR-ingar munu hins vegar þurfa að eiga mun betri leik í kvöld heldur en í Garðabænum á dögunum þar sem að Stjarnan tók öll völd á vellinum í seinni hálfleik og sigldi heim öruggum tuttugu og fjögurra stiga sigri, 104-80. „Þrátt fyrir að staðan hafi verið nokkuð jöfn í fyrri hálfleik þá voru samt margir hlutir þar sem við vorum ekki að gera nægilega vel. Hlutir sem við höfðum gert betur fyrr í þessu einvígi. Svo náttúrulega misstum við þetta bara alveg frá okkur í seinni hálfleik. Það er eitthvað sem við þurfum klárlega að læra af. Mér fannst við ekki standa nógu vel saman þegar að Stjarnan byrjaði vel í seinni hálfleik.Við vorum ekki alveg klárir og náðum svo aldrei að finna okkar takt, sérstaklega varnarlega. Stjarnan byrjaði bara á því að fá auðveld skot, auðveldar körfur og sniðskot. Þá var allur skriðþungi með þeim. Þeir, eins og við, eru mjög sterkir á heimavelli. Þegar að þeir komast á bragðið, með stúkuna með sér, er erfitt við þá að eiga. Við náðum bara aldrei að komast í takt við leikinn. Náðum ekki að gera atlögu að þeim í seinni hálfleik.“Það er farið að vora úti en þið eruð ekki tilbúnir í að fara í sumarfrí alveg strax?„Klárlega ekki. Þetta er það skemmtilegt. Verður bara skemmtilegra og skemmtilegra eftir því sem líður á úrslitakeppnina. Við erum ekki klárir í að fara í sumarfrí. Okkur langar í fleiri stóra leiki og sjá hvað við getum komist langt.“Leikur fjögur í einvígi KR og Stjörnunnar í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta hefst klukkan hálf átta í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla KR Stjarnan Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira