Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar 14. apríl 2026 08:15 Hvernig sem á það er horft er Akureyrarbær höfuðstaður Norðurlands. Nýlega var mikilvægi Akureyrarbæjar staðfest með borgarstefnu sem samþykkt var á Alþingi, við búum nú í svæðisborg sem gegnir þjónustuhlutverki við mun stærra svæði. Atvinnumálin í okkar bæ snúast því ekki bara um fyrirtækin sjálf, heldur um það hvort að fólk sjái framtíð sína hér og ekki á höfuðborgarsvæðinu. Akureyrarbær hefur alla burði til að auka samkeppnishæfni Íslands í heild og vera raunverulegur valkostur fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem vilja flytja til Íslands og búa í borgarsamfélagi. Þar með aukast lífsgæði allra þeirra sem byggja landshlutann eins og hann leggur sig. Pólítíkin á að móta stefnuna, ekki öfugt Síðasta atvinnustefna sem unnin var fyrir Akureyri rann út árið 2021 og núverandi meirihluti bæjarstjórnar hefur ekki séð ástæðu til að hefja vinnu við nýja. Á næsta kjörtímabili þarf að endurnýja aðalskipulag Akureyrarbæjar og ég tel rétt að vinna atvinnustefnu samhliða aðalskipulagi úr því sem komið er. Akureyrarbær þarf sína eigin, skýru atvinnustefnu til 10-15 ára þar sem grundvallarspurningum verður svarað; Hvernig atvinnulíf viljum við að vaxi og dafni til framtíðar í Akureyrarbæ? Hvaða greinar viljum við efla og hvers vegna? Hvernig tryggjum við að ávinningurinn skili sér til samfélagsins? Þegar þessum spurningum er svarað þurfa að fylgja aðgerðir, m.a. í gegnum aðalskipulag, með ákvörðunum um atvinnusvæði, blöndun byggðar, hafnarsvæði, samgöngur og aðra innviði. Þannig mótar pólitísk stefna skipulagið en ekki öfugt. Þegar fjárfestar leita til bæjarins þurfum við að geta svarað til um lóðaframboð, hvaða innviðir og grunnþjónusta eru til staðar og hvernig samgöngumálum er háttað. Þessum spurningum svörum við bæði með skýrri atvinnustefnu og öflugu aðalskipulagi sem svarar þörfum atvinnulífs jafnt við uppbyggingu á hverfum og íbúðum fyrir íbúa. Gjaldtaka sem styður við vöxt Í tengslum við atvinnustefnu þarf að taka umræðu um fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis. Fasteignagjöld eru bæði mikilvægur tekjustofn og stýritæki sveitarfélagsins. Þau geta stutt við fjölbreytt atvinnulíf eða hamlað því og það skiptir því máli hvernig þeim er beitt. Fasteignagjöld eiga ekki einungis að „fylla gatið í fjárhagsáætlun“ heldur verður þau að styðja við þá atvinnustefnu sem bærinn hefur mótað. Ef við viljum t.a.m. styðja við nýsköpun, þjónustu, skapandi greinar og smærri atvinnurekendur á Akureyri, þá verðum við að endurskoða hvort gjaldtakan í dag styðji við þá stefnu eða vinni gegn henni. Samfylkingin á Akureyri boðar heiðarlega greiningu og breytingar sem tryggja bæði sterkan bæjarsjóð og vaxandi, fjölbreytt atvinnulíf. Þekkingarsamfélag og störf framtíðarinnar Það er einnig augljóst að Akureyrarbær á að halda áfram uppbyggingu sinni sem raunverulegt háskóla- og þekkingarsamfélag. Ef við viljum halda ungu fólki í bænum, sérfræðingum og skapandi einstaklingum á svæðinu, verðum við að bjóða upp á störf framtíðarinnar hér fyrir norðan og ekki aðeins í Reykjavík. Atvinnustefnan þarf því að leggja skýra áherslu á samstarf við Háskólann á Akureyri og framhaldsskóla bæjarins, á uppbyggingu nýsköpunar- og frumkvöðlasamfélags og að gera Akureyri að augljósum kosti fyrir fjarvinnandi fólk og þekkingarfyrirtæki. Styðja þarf við að hér verði áfram öflugur sjávarútvegur, iðnaður og ferðaþjónusta en því til viðbótar verðum við einnig að skjóta nýjum stoðum undir atvinnulíf bæjarins. Sem dæmi má nefna að við eigum nú þegar öflug nýsköpunarfyrirtæki í gagnavers- og líftækniiðnaði sem við viljum að geti vaxið áfram hér og skapað afleidd störf. Atvinnustefna sem talar ekki um húsnæði, velferð, menningu og innviði væri ekki merkilegur pappír. Staðreyndin er að fyrirtæki og fjárfestar koma ekki þar sem starfsfólk fær ekki húsnæði við hæfi eða leikskólapláss, og fólk vill síður búa þar sem ekki er aðgengi að heilbrigðisþjónustu, góðar samgöngur og öflug menningarstarfsemi. Þess vegna þarf atvinnustefnan að vera þverfagleg: Íbúðauppbygging og atvinnuuppbygging verða að ganga í takt; samgöngur innan bæjar og út úr honum eru einnig mikilvægur hluti af atvinnustefnu; öflugt skólakerfi og heilbrigðisþjónusta eru lykilatriði í samkeppnishæfni Akureyrar sem borgar. Jafnframt má ekki gleyma mikilvægi menningarinnar og tækifæranna í skapandi greinum. Enn fremur er ljóst að engin atvinnustefna verður mörkuð í dag án þess að taka tillit til áhrifa gervigreindar á vinnumarkað nútímans og framtíðar. Hugsum stórt og til framtíðar Að lokum skiptir máli hvernig stefnan verður til. Sterk atvinnustefna verður ekki skrifuð í lokuðu reykfylltu bakherbergi né verður hún mótuð í tómarúmi. Hana þarf að móta í opnu samráði við íbúa, stéttarfélög, fyrirtæki, háskólasamfélagið, stofnanir og félagasamtök. Henni þarf þar að auki að fylgja skýr aðgerðaáætlun, með skilgreindri ábyrgð og tímalínu ásamt reglulegu stöðumati. Akureyrarbær má ekki lengur láta atvinnumálin reka á reiðanum og vera ávallt í viðbragði og skammtímaákvörðunum. Hluti þess að standa undir nafni sem svæðisborg er að uppfylla skyldur sínar í að móta skýra, réttláta og framsækna atvinnustefnu. Þetta ætlar Samfylkingin á Akureyri að gera í anda jafnaðarstefnu, samfélagslegrar ábyrgðar og í þeirri trú að Akureyrarbær hafi tækifæri og möguleika á að vaxa langt umfram það sem er í dag. Það muna flestir hvað það var algengt á yngri árum að fá spurninguna „hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór?“Það stóð auðvitað ekki á svörum, en þau tóku breytingum eftir því sem tíminn leið; lögga, bófi, hárgreiðslukona eða skrifstofumaður. En á endanum stóðu flestir frammi fyrir því að ákveða sig og tóku ákvörðun. Bærinn okkar þarf að mínu mati að fara að ákveða sig. Hvernig bæ viljum við búa í eftir 10 ár, eða 15 ár, eða 30 ár? Hvað ætlar hann að verða þegar hann verður stór? Þar leikur atvinnustefnan lykilhlutverk. Hugsum stórt, og til framtíðar. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun