„Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 18:44 Brynjar Karl Sigurðsson er aðalmaðurinn hjá Aþenu í Efra-Breiðholti og hefur mikla reynslu af þjálfun ungra körfuboltakrakka. vísir/Anton Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu, sem tryggði sér sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta á dögunum, er mjög hneykslaður á einni reglu sem er dæmt eftir á yngri flokka mótum á Íslandi.
Reglan sem um ræðir gildir hjá yngstu krökkunum eða leikmönnum í 1. og 2. bekk annars vegar og leikmönnum úr 3. og 4. bekk hins vegar. Samkvæmt reglunni er varnarmanni bannað að taka boltann af andstæðingi ef andstæðingurinn er með vald á boltanum. Brynjar Karl hefur mikla reynslu af yngri flokka þjálfun á Íslandi en er jafnframt mjög umdeildur innan hreyfingarinnar fyrir þjálfaraaðferðir sínar þar sem hann fer vissulega sínar eigin leiðir. Brynjar Karl mætti á yngri flokka mót á dögunum og var svo hneykslaður á fyrrnefndri reglu að hann skrifaði pistil og vakti athygli á henni á samfélagsmiðlum. „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik,“ byrjar Brynjar pistil sinn en hann talar þar meðal annars um þroskaþjófnað sem að hans mati er stórhættulegur fyrir börnin. „Það er kannski ekki skrítið að til sé hópur fræðimanna og forsvarsfólks í íþróttum sem lítur á mig eins og einhvern barnaþrjót, þegar reglur KKÍ hafa um nokkurt skeið sagt að börn á aldrinum 6–9 ára eigi að leika eftir reglum sem banna þeim að taka boltann af hvort öðru,“ skrifar Brynjar. „Ég fór á mót um helgina í þessum aldri og mér krossbrá að sjá keyrt á þessa reglu. Ég hélt að enginn myndi hlusta á þetta bull. Mínir þjálfarar sögðu mér að svona hefði þetta verið í vetur. Ég tók þá á teppið og spurði hvort þeir ætluðu bara að vera „bystanders“ í þessum þroskaþjófnaði. Þetta er stórhættulegt fyrir börnin,“ skrifar Brynjar. „Á sama tíma kemur fólk á æfingu hjá mér í Aþenu og sér krefjandi æfingar, bein samskipti og börn sem eru þjálfuð í að takast á við tilfinningar, geðshræringar, mistök, óöryggi og álag í gegnum æfingarnar sjálfar,“ skrifar Brynjar. „Síðast þegar ég vissi var það meðal annars eðli boltaíþrótta að taka boltann af andstæðingnum. Leikur er í eðli sínu átakasvæði. Körfubolti er meira að segja tiltölulega mildur miðað við margar aðrar greinar, því vörnin má lítið annað en að snerta boltann, ekki manninn. Samt erum við komin þangað að sjálf grunnátök leiksins virðast orðin of mikið fyrir hugmyndafræði samtímans um að hlífa börnum, “ skrifar Brynjar en það má lesa allan pistil hans hér fyrir neðan.
Körfubolti Aþena Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira