Innlent

Æsi­legri eftir­för lauk í Skútu­vogi

Eiður Þór Árnason skrifar
Nokkur fjöldi lögreglumanna var á vettvangi.
Nokkur fjöldi lögreglumanna var á vettvangi. Vísir

Hópur lögreglumanna tók þátt í aðgerð í Skútuvogi í Reykjavík nú síðdegis. Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ökumanni hafi verið veitt eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarskyldu. Hann hafi að lokum verið handtekinn í Skútuvogi.

Veistu meira? Áttu myndir eða myndbönd af vettvangi? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.


Ásmundur kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu tóku lögreglumenn á um fjórum mótorhjólum þátt í eftirförinni ásamt lögreglubíl og keyrðu hjá Húsgagnahöllinni og inn á Sæbraut áður en förinni lauk í Skútuvogi.

Klippa: Lögregluaðgerð í Skútuvogi

Að lokum hafi ökumaðurinn verið fjarlægður úr bílnum og hann snúinn niður á jörðina. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var hundur eftir í bílnum þegar ökumaðurinn var handtekinn.

Sakborningurinn var berfættur þegar hann var fjarlægður úr bílnum.Vísir

Ökumaðurinn var snúinn niður.vísir

Fréttin hefur verið uppfærð. Sakborningurinn var berfættur þegar hann var fjarlægður úr bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×