Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 14:47 Stefan Alexander Ljubicic skoraði tvívegis á Meistaravöllum í gær. Það dugði þó skammt. vísir/viktor freyr KR þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum gegn nýliðum Keflavíkur í 1. umferð Bestu deildar karla í gær. Úrslitin voru þó í takti við gengi liðanna í innbyrðis viðureignum þeirra síðustu tæpu tvo áratugina.
Hinn sextán ára Alexander Rafn Pálmason skoraði sigurmark KR gegn Keflavík, 3-2, á Meistaravöllum í gær. KR komst yfir með marki Arnórs Ingva Traustasonar, fyrrverandi leikmanns Keflavíkur, strax á 6. mínútu. Stefan Alexander Ljubicic, sem lék eitt tímabil með KR, jafnaði fyrir Keflavík á 53. mínútu og kom nýliðunum svo yfir á 77. mínútu. Varamaðurinn Stefán Árni Geirsson jafnaði eftir mikinn einleik á 88. mínútu og aðeins mínútu síðar skoraði Alexander sigurmark Vesturbæinga. KR hefur haft mikið tak á Keflavík á undanförnum árum og ekki tapað fyrir Suðurnesjaliðinu í efstu deild í átján ár. Síðasti sigur Keflavíkur á KR kom suður með sjó 8. júní 2008. Keflvíkingar unnu þá 4-2 sigur þar sem Guðmundur Steinarsson, sem var valinn leikmaður ársins þetta tímabil, skoraði tvívegis. Guðmundur Steinarsson átti oft góðu gengi að fagna gegn KR-ingum og skoraði tvö mörk í síðasta sigri Keflvíkinga á Vesturbæingum.vísir/vilhelm Síðan þá hafa KR og Keflavík mæst 24 sinnum í efstu deild. KR-ingar hafa unnið nítján leiki og fimm sinnum hafa liðin skilið jöfn. Markatalan er 48-11, KR í vil. Eftir tvö ár í Lengjudeildinni er Keflavík komið aftur í Bestu deildina. Liðið vann HK, 4-0, í úrslitum umspils á Laugardalsvelli síðasta haust. KR endaði aftur á móti í 10. sæti Bestu deildarinnar í fyrra. Önnur umferð Bestu deildarinnar fer í heild sinni fram á föstudaginn. Þá fær KR hina nýliðana, Þór, í heimsókn. Keflavík sækir hins vegar Fram heim. Fyrsti heimaleikur Keflavíkur er í 3. umferð þegar liðið fær Breiðablik í heimsókn. Sá leikur fer fram miðvikudaginn 22. apríl.
Besta deild karla KR Keflavík ÍF Tengdar fréttir „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Það voru blendnar tilfinningar hjá Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, eftir að hafa horft upp á lið sitt missa niður 2-1 forystu í 3-2 tap í leik liðsins gegn KR í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í Vesturbænum í kvöld. 12. apríl 2026 20:03 „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjáflari KR, sagði að leikmenn sínir hafi ekki náð að losa bönd sviðsskrekksins af sér þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravelli í kvöld. Það sé þó merki um karakter og aukinn þroska að náð að kreista fram sigur. 12. apríl 2026 19:58 Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Það var heldur betur fjör og dramatík þegar KR lagði Keflavík að velli, 3-2, í leik liðanna í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. 12. apríl 2026 18:54 Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira
„Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Það voru blendnar tilfinningar hjá Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, eftir að hafa horft upp á lið sitt missa niður 2-1 forystu í 3-2 tap í leik liðsins gegn KR í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í Vesturbænum í kvöld. 12. apríl 2026 20:03
„Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjáflari KR, sagði að leikmenn sínir hafi ekki náð að losa bönd sviðsskrekksins af sér þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravelli í kvöld. Það sé þó merki um karakter og aukinn þroska að náð að kreista fram sigur. 12. apríl 2026 19:58
Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Það var heldur betur fjör og dramatík þegar KR lagði Keflavík að velli, 3-2, í leik liðanna í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. 12. apríl 2026 18:54