Innlent

Leita að manni í Ölfus­á

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Lögreglan nýtur aðstoðar björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar.
Lögreglan nýtur aðstoðar björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar. Aðsend

Leit stendur yfir að manni sem talinn er hafa fallið í Ölfusá. Þetta staðfestir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögreglustjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu.

„Við fengum tilkynningu um málið fyrir um tuttugu mínútum síðan og leit stendur yfir,“ segir Jón Gunnar. Lögreglan nýtur liðsinnis þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarsveita.

Töluverður viðbúnaður er við ána eins og sést á myndinni sem fylgir fréttinni. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar eru tveir sjúkrabílar á vettvangi og lögreglubifreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×