Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum Árni Jóhannsson skrifar 10. apríl 2026 21:36 Hilmar Smári átti frábæran leik í kvöld Vísir / Diego Hilmar Smári Henningsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik í kvöld en, eins og Stjarnan í heild, sprakk út í þeim seinni þegar KR-ingar voru lagði af velli í þriðja leik átta liða úrslitum Bónus deildar karla. Stjarnan vann seinni hálfleikinn 51-29 og skoraði Hilmar 17 stig í leiknum.
Hilmar var spurður að því hvað breyttist hjá Stjörnunni í seinni hálfleik eftir jafnan fyrri hálfleik. „Mér fannst við bara koma sterkari út og við framkvæmdum varnarleikinn okkar betur í seinni hálfleik. Í lok fyrri hálfleiks þá fannst mér við ná betra flæði í sóknarleiknum sem mér fannst við halda út í seinni hálfleik. Mér fannst við taka réttar ákvarðanir og pössuðum boltann vel. Það skipti mestu máli.“ Hilmar var ekki sammála blaðamanni þegar hann var spurður að því hvort það hafi komið honum á óvart hvernig KR-ingarnir koðnuðu niður í seinni hálfleik. „Koðnuðu en ekki koðnuðu. Ég mest af öllum get talað um það að eiga lélega skotleiki og klikka á skotum sem maður er vanur að hitta. Ég er ekki sammála því að þeir hafi koðnað niður. Þeir eru það gott lið að ég er bara ósammála því að þeir hafi koðnað niður. Við gerðum bara það vel og gáfumst aldrei upp. Það er rosalega erfitt að halda forskoti í úrslitakeppninni og mér fannst við ná því og ég er bara mjög stoltur af mínum mönnum að ná því.“ Hver er munurinn á milli leiks tvö og leiks þrjú að mati Hilmars? „Mér fannst við bara koma sterkir inn í seinni hálfleik. Við vorum svolítið flatir í fyrri hálfleik. Munurinn var svo ákefðin og að við fórum að finna svæði í þeirra vörn sem við náðum að sækja á. Við vorum að taka betri ákvarðanir og sækja betur á þessar opnanir og gerðum það reglulega.“ Hvað hugsa menn um á milli leikja þegar það er möguleiki á að komast áfram í næstu umferð? „Það er alltaf sama saga. Bara einn leikur í einu og ef maður fer of langt með þetta þá fer hausinn bara í bull. Eina sem við hugsum um er að við hugsum vel um líkamann okkar og vera tilbúnir í næsta leik. Það er erfitt að ná í sigur á útivelli í úrslitakeppninni og sérstaklega á Meistaravöllum. Það er bara okkar markmið núna.“
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira