Algjör ringulreið: Leik frestað hjá Alfons og Stefáni eftir ótrúlega uppákomu Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 10:59 Alfons Sampsted er leikmaður GA Eagles sem ætti að vera keppa við PEC Zwolle þessa stundina en stuðningsmenn gestaliðsins eru að valda ringulreið Vísir/Samsett Leik hjá Alfons Sampsted, Stefáni Inga Sigurðarssyni og liðsfélögum hans í Go Ahead Eagles gegn erkifjendunum í PEC Zwolle í hollensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að harðasti kjarni stuðningsmannahóps PEC neitaði að taka niður klæði sem hylur andlit þeirra.
Leikur liðanna, sem fer fram á heimavelli GA Eagles, átti að hefjast klukkan korter yfir tíu en enn sem komið er hefur ekki tekist að fá stuðningsmenn PEC til þess að vera samvinnuþýðir. Mat yfirvalda í svona stöðu er að mun meiri líkur á að til óláta komi þegar að stuðningsmannakjarnar á borð við þann hjá PEC Zwolle kýs að hylja andlit sitt á leikjum með það fyrir augum að ekki sé hægt að bera kennsl á þá. Því var ákveðið að leyfa leiknum ekki að fara af stað fyrr en búið væri að greiða úr þessari stöðu. Leikmaður og þjálfari PEC Zwolle hafa reynt að ræða við stuðningsmennina um málið en hefur ekki gengið til þessa að fá þá til að vera samvinnuþýða De IJsselderby is tot nader orde uitgesteld vanwege verboden gezichtsbedekking bij de PEC Zwolle-fans⏳ pic.twitter.com/Y46qjsbCvy— ESPN NL (@ESPNnl) April 5, 2026 Uppfært 11:35 Leikmenn eru mættir aftur út á völl til að hita upp. Stefnir allt í að leikurinn geti farið af stað í kringum korter í tólf að íslenskum tíma. Uppfært 11:07: Verið er að láta stuðningsmenn PEC Zwolle yfirgefa stúkuna. Það er ekki fyrr en þeir eru komnir upp í rútu á leið til síns heimabæjar sem upphitun liðanna tveggja mun hefjast á ný áður en að leikurinn verður flautaður á. Uppfært 11:00: Búið er að kalla til óeirðarlögreglu til þess að leysa úr málinu við mikla kátínu stuðningsmanna heimaliðsins. Stuðningsmannahópur PEC Zwolle hefur neitað að gefa eftir. Þeir verða margir hverjir látnir yfirgefa völlinn.
Hollenski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Sjá meira