„Nær alltaf að spýta einhverri geðveiki í þetta lið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 14:00 Borsche Ilievski, þjálfari ÍR. Vísir/Hulda Margrét Tindastóll og ÍR hefja í kvöld einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta, en þar eigast við liðin sem höfnuðu í öðru og sjöunda sæti deildarkeppninnar. Rýnt var í komandi einvígi í Bónus Körfuboltakvöldi.
ÍR mætir til leiks talið töluvert ólíklegra til árangurs líkt og taflan sýnir. ÍR-ingar hafa hins vegar verið sérfræðingar í því, undir stjórn Borsche Ilievski, að slá upp fyrir sig og iðulega látið lið sem eru sterkari á pappír hafa rækilega fyrir hlutunum. „Borsche nær alltaf árangri og nær alltaf að spýta einhverri geðveiki í þetta ÍR-lið. Þetta eru strákar sem eru til í að vaða eld og brennistein fyrir þjálfarann sinn. Maður sér það á því hvernig þeir spila, að hann nær að búa til hóp af leikmönnum sem eru ekki endilega bestu leikmenn deildarinnar en nær þessum púslum, leikmenn sem verða ÍR-leikmenn,“ segir Hermann Hauksson, sérfræðingur Körfuboltakvölds. „Þetta lið er stór, stórhættulegt,“ segir Hermann enn fremur. Klippa: Körfuboltakvöld um einvígi Tindastóls og ÍR „Besta leiðin til að hægja á Tindastóli er að skora á þá. Sem hefur reynst svolítið erfitt. Það er ástæðan fyrir því að þeir geta hlaupið völlinn helvíti hratt. Þeir eru frábært varnarlið. Þeir geta farið hratt af stað, með fljóta leikmenn en eru líka með þannig leikmenn að þeir geta aðlagað sig að hálfum velli og þunglamalegri körfubolta. Með (Adomas) Drungilas, (Davis) Geks, Pétur (Rúnar Bjarnason) á auðvelt með að setja upp leiki. Pétur fær oft aukið vægi í úrslitakeppninni. Það er valinn maður í hverju rúmi þarna í Tindastóli,“ segir Sævar Sævarsson um Tindastólsliðið sem er talið töluvert sigurstranglegra fyrir einvígið sem hefst í kvöld. Fleira kemur fram í umræðunni sem sjá má í spilaranum. Leikur Tindastóls og ÍR er klukkan 19:00 í kvöld en bein útsending hefst klukkan 18:50 á Sýn Sport Ísland 2. Allir fjórir leikir gærkvöldsins og kvöldsins í kvöld verða gerðir upp í Bónus Körfuboltakvöldi eftir leikinn á Hlíðarenda klukkan 21:15.
Bónus-deild karla ÍR Tindastóll Körfuboltakvöld Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira