Niðurgreiða þyndarstjórnunarlyf fyrir þá sem hafa fengið hjartaáfall eða heilablóðfall Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. apríl 2026 07:47 Semaglutide virðist draga úr líkunum á hjartaáföllum og heilablóðfalli óháð þyngdartapi. Getty/Corbis/Steve Christo Heilbrigðisyfirvöld á Englandi hyggjast niðurgreiða þyngdarstjórnunarlyf fyrir um það bil milljón manns sem eru í aukinni áhættu á að fá hjartaáfall eða heilablóðfall.
Heilbrigðiskerfið á Englandi niðurgreiðir nú þegar Wegovy fyrir einstaklinga í ofþyngd og Ozempic fyrir einstaklinga með sykursýki 2. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að stækka hópinn sem getur fengið lyfin með greiðsluþátttöku frá ríkinu. Yfirvöld hafa ákveðið, á grundvelli nýrra rannsókna, að niðurgreiða lyfin fyrir einstklinga hvers líkamsþyngdarstuðull (BMI) er 27 eða hærri og hafa fengið hjartaáfall, heilablóðfall eða búa við truflanir á blóðfæði í fótum. Rannsóknir hafa sýnt að lyfin draga úr líkum á hjartaáföllum og heilablóðfalli, óháð þyngdartapi. Þá virðist notkun þeirra samfara öðrum hjartalyfjum draga verulega úr líkunum á því að þeir sem hafa áður fengið hjartaáfall eða heilablóðfall fái þau aftur. „Við vitum að fólk sem hefur fengið hjartaáfall eða heilablóðfall býr við raunverulegan ótta um að það gerist aftur. Þessi ákvörðun færir þúsundum einstaklinga í þeirri stöðu auka vörn, til viðbótar við þau lyf sem þeir taka fyrir,“ hefur Guardian eftir Helen Knight, framkvæmdastjóra hjá National Institute for Health and Care Excellence.
Bretland England Lyf Heilbrigðismál Þyngdarstjórnunarlyf Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Sjá meira