Þjálfarinn á Tene degi fyrir leik í úrslitakeppni: „Ég væri brjáluð“ Aron Guðmundsson skrifar 1. apríl 2026 08:00 Hörður Axel ræðir hér við sína leikmenn í leiknum gegn KR í gær. Vísir/Pawel Sérfræðingar Körfuboltakvölds ráku upp stór augu er þær fréttu af því að Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta, hefði verið staddur á Tenerife degi fyrir mikilvægan leik liðsins í úrslitakeppni Bónus deildarinnar gegn KR.
Keflavík tapaði fyrsta leik sínum gegn KR í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í gær. Meint fjarvera þjálfara Keflavíkur í aðdraganda leiksins mikilvæga vakti furðu í umræðu um leikinn í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland í gær. Hörður Axel Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, er sagður hafa verið staddur á Tenerife, degi fyrir leikinn gegn KR, fyrsta leik Keflavíkur í úrslitakeppninni þetta tímabilið. „Ef þú þarft svona mikið frí þá kannski þarftu líka að stíga til hliðar á þessum tímapunkti,“ sagði Embla Kristínardóttir, tvöfaldur Íslandsmeistari og sérfræðingur Körfuboltakvölds. Klippa: Þjálfarinn á Tene degi fyrir leik í úrslitakeppni Undirbúningurinn sé það mikilvægasta í þessum bransa. Sértu ekki undirbúinn þá ertu ekki tilbúinn í leikinn. „Þú ert að undirbúa þig fyrir úrslitakeppni en ert ekki einu sinni með liðinu þínu. Mér finnst þetta svo mikil vanvirðing,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds um fjarveru Harðar Axels, þjálfara Keflavíkur, í aðdraganda fyrsta leiks í úrslitakeppninni. „Veit ekki hvern djöfulinn hann var að gera á Tenerife“ Bæði Ólöf og hennar sérfræðingar höfðu það eftir öruggum heimildum að þetta væri staðan. Að Hörður hafi verið á Tenerife í aðdraganda fyrsta leiks í úrslitakeppninni gegn KR. „Ég ætla að segja þetta með fyrirvara,“ sagði Hallveig Jónsdóttir, þrefaldur Íslandsmeistari og einn af sérfræðingum Körfuboltakvölds og hóf síðan eldræðu sína. „Ég veit ekki hvern djöfulinn hann var að gera á Tenerife. Hvort þetta hafi verið eitthvað neyðarástand eða hvort hafi verið um að ræða eitthvað sem samið hafði verið um fyrir löngu síðan. Ef ég væri leikmaður Keflavíkur þá væri ég brjáluð. Þú ert að fara í fyrsta leik í úrslitakeppninni, á móti liði sem endar fyrir ofan þig í deildarkeppninni. Þú ert búinn að vera drulla í þig einhvern veginn allt tímabilið og ætlar ekki að vera með í undirbúningi. Ég væri brjáluð sem leikmaður.“ Ólöf og hennar sérfræðingar höfðu síðan einnig heyrt af því að Hörður Axel hefði fryst Bríeti Sif Hinriksdóttur, leikmann Keflavíkur, á bekknum sökum þess að hún hefði misst af æfingu vegna vinnu. „Hefði ekki bara átt að frysta hann?“ spurði Ólöf en umræðuna um Hörð Axel og lið Keflavíkur í Körfuboltakvöldi má sjá ofar í fréttinni.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira