Enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum Björn Leví Gunnarsson skrifar 31. mars 2026 22:01 Það er enn verið að svindla á ellilífeyrisþegum, og þó það sé komið lögfræðiálit frá skrifstofu Alþingis er enn ekkert búið að gera. Í stuttu máli Ég hef skrifað um þetta áður (https://www.visir.is/g/20232456216d/faerdu-rett-greiddan-lif-eyri-fra-trygginga-stofnun-), þannig að það er hægt að lesa þá grein fyrir nákvæmar útskýringar á því hvað er í gangi. En í stuttu máli er vandinn sá að lífeyrir almannatrygginga er með almennt og sérstakt frítekjumark. Almennt frítekjumark sem er í dag 720 þúsund krónur á ári og sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna upp á 2,4 milljónir á ári. Eins og allir ættu að vita þá eru greiðslur úr atvinnutengdum lífeyrissjóðum flokkaðar sem atvinnutekjur í lögum um tekjuskatt, annars væri ekki greiddur tekjuskattur af þeim tekjum. Eins og segir í lögunum: “Endurgjald fyrir hvers konar vinnu, starf eða þjónustu, án tillits til viðmiðunar, sem innt er af hendi fyrir annan aðila. Hér með teljast til dæmis hvers konar [...] eftirlaun og lífeyrir”. Sem þýðir að greiðslur úr atvinnutengdum lífeyrissjóðum ættu að vera með frítekjumark, eins og aðrar atvinnutekjur, upp á 2,4 milljónir á ári. Reiknivél Tryggingastofnunar sýnir hins vegar að svo er ekki. Enn ekkert gert Það tók fjögur ár að fá fyrst fjárlaganefnd og svo velferðarnefnd til þess að biðja um lögfræðilegt minnisblað vegna þessa máls. Í útúrdúr verð ég að nefna að málshraðinn þarna inni á þingi er fáránlegur - og það er meirihlutinn sem ræður málshraðanum. Og nú, rétt tæpum tveimur árum seinna, er enn ekki búið að gera neitt. Ég var að reka á eftir þessu máli þegar ég var á þingi og það fyrsta sem ég gerði eftir að það var búið að skipa í nýja velferðarnefnd á þessu kjörtímabili var að senda velferðarnefnd ábendingu um þetta minnisblað og bjóðast til þess að kynna málið til þess að hægt væri að halda því áfram. Einn þingmaður svaraði þeirri ábendingu þá - og hélt því fram að þetta myndi nú örugglega vera tekið fyrir í endurskoðun á lögunum. Enn hefur ekkert gerst. Þess vegna sendi ég aftur erindi rúmu ári seinna til þess að minna á málið. Enda margir nýjir nefndarmenn komnir í velferðarnefnd - og ekkert frumkvæðismál hafið tengt þessu. Um mánuði síðar hef ég ekki fengið eitt svar við þeirri ábendingu heldur. Ekki frá formanni nefndarinnar. Ekki frá neinum nefndarmanni. Ekki frá ráðherra málaflokksins - þrátt fyrir lagalegt minnisblað skrifstofu þingsins um að lögin væru óskýr og það þyrfti að bregðast við. Eða eins og sagt er í minnisblaðinu:“Í þágu aukins skýrleika er lagt til að velferðarnefnd fjalli um það, við umfjöllun um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga, hvort þau álitamál sem fjallað er um í minnisblaðinu gefi tilefni til breytinga á lögunum.” Niðurstaðan verður ekki skýrari Ég býst ekki við að fólk þurfi að trúa mér. Ég skil alveg að fólk líti á það sem ég segi sem hlutdrægt á einhvern hátt. En rétt skal vera rétt og sú túlkun sem ég hafði á lögunum var sú sama og skrifstofa þingsins komst að:“Í framkvæmd hefur verið litið á greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum sem tekjur sem falli undir almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris, en ekki sem atvinnutekjur sem falli undir sérstakt frítekjumark. Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu í bréfi í máli nr. 11366/2021 að sú framkvæmd eigi sér stoð í lögunum með vísan til orðalags þeirra og lögskýringargagna. Sé horft til orðalags orðskýringarákvæða 9. og 10. tölul. 2. gr. laganna má hins vegar draga þá ályktun að farið skuli með þær greiðslur sem atvinnutekjur. Byggist sú niðurstaða á orðskýringu ákvæðisins með hliðsjón af 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt, sem vísað er til í orðskýringunni.” Þetta þýðir að allir lífeyrisþegar landsins sem eru með allt að 2,4 milljónum í greiðslur úr lífeyrissjóðum á ári eru snuðaðir um frítekjumark vegna atvinnutekna vegna þeirra greiðslna. Að því gefnu að þeir hafi engar aðrar atvinnutekjur sem myndu teljast upp í það frítekjumark. Lífeyrisþegi sem er ekki með neinar atvinnutekjur aðrar en greiðslur frá lífeyrissjóðum ætti því að vera með 2,4 milljónum meira í greiðslur frá Tryggingastofnun á ári ef lífeyrissjóðsgreiðslurnar ná 2,4 milljónum. Það var nógu erfitt að koma þessu máli áfram á síðasta kjörtímabili. Það var endalaus tafaleikur í gangi þá. Það er mér ofviða að skilja hvernig þetta mál hreyfist nákvæmlega ekkert á þessu kjörtímabili. Þetta er ekki mál sem ætti að vera flokkspólitískt einu sinni. Höfundur er fyrrverandi þingmaður og núverandi nörd. Tengd skjöl Minnisblað_lífeyrisgreiðslur_frítekjumörkPDF162KBSækja skjal Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Leví Gunnarsson Lífeyrissjóðir Eldri borgarar Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar