Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Kristján Már Unnarsson skrifar 31. mars 2026 23:10 Formaður Lögþingsins, Bjørt Samuelsen, eða Løgtingsforkvinnan, tekur á móti Beini Johannesen, formanni Fólkaflokksins, til að veita honum umboð til stjórnarmyndunar. Kringvarpið Viðræður um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum hófust í gær undir forystu Beinis Johannesen, formanns Fólkaflokksins, stærsta sigurvegara þingkosninganna. Beinir gæti orðið yngsti lögmaður Færeyja, aðeins 29 ára gamall. Færeyingar fengu einnig yngsta þingmann í sögu Lögþingsins, tvítuga konu.
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um færeysk stjórnmál en þegar talið var upp úr kjörkössunum á fimmtudag reyndist Fólkaflokkurinn undir forystu hins 29 ára Beinis Johannesen vera stærsti sigurvegarinn með 26,7 prósent atkvæða og níu þingmenn af 33 á Lögþinginu. Sambandsflokkurinn undir forystu Bárðar á Steig Nielsen varð í öðru sæti með 21,5 prósent atkvæða og sjö þingmenn en Javnaðarflokkur fráfarandi lögmanns, Aksels Johannesen, hlaut 18,9 prósent atkvæða og sex þingmenn. Tjóðveldi undir forystu Sirið Stenberg hlaut 17,4 prósent atkvæða og sex þingmenn. Flest atkvæði þingmanna Tjóðveldis fékk þó Bjørg Brynhildardóttir Egholm. Hún er aðeins tvítug að aldri og yngst allra í sögunni til að vera kjörin á Lögþing Færeyja. Bjørg Brynhildardóttir Egholm er yngsti þingmaður í sögu Lögþings Færeyja, tvítug að aldri.Kringvarpið Eftir að Aksel Johannesen hafði beðist lausnar fékk Beinir Johannesen umboð frá formanni Lögþingsins til að mynda nýja stjórn. Ákvað Beinir, eftir samtal við fulltrúa allra flokka, að freista þess að mynda þriggja flokka stjórn Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins og hófust formlegar stjórnarmyndunarviðræður í Þórshöfn í gær. Beinir Johannesen sagði góðan anda ríkja á milli forystumanna flokkanna en þess má geta að hann er bróðursonur Aksels Johannesen. Flokksformennirnir þrír hefja stjórnarmyndunarviðræður. Frá vinstri: Beinir Johannesen, Fólkaflokknum, Bárður á Steig Nielsen, Sambandsflokknum, og Aksel Johannesen, Javnaðarflokknum. Þeir Bárður og Aksel hafa báðir gegnt embætti lögmanns, sem situr í forsæti landsstjórnar Færeyja.Kringvarpið Flokkarnir þrír eru búnir að skipa þingmönnum sínum niður í fjóra málefnahópa til að ná saman um helstu málaflokka. Lýsti Beinir því yfir í viðtölum við færeyska fjölmiðla í gær að hann vonaðist til að það tækist að mynda stjórn þessara flokka fyrir lok næstu viku. Sjö flokkar náðu fulltrúum inn á Lögþingið. Formenn A, B og C til vinstri ræða núna saman um stjórnarmyndun.Kringvarpið
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Tengdar fréttir Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52 Boðaði þingkosningar í skyndi Lögmaður Færeyja hefur boðað til þingkosninga í Færeyjum eftir rúman mánuð. Næstu kosningar áttu að vera í desember. 25. febrúar 2026 16:44 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52
Boðaði þingkosningar í skyndi Lögmaður Færeyja hefur boðað til þingkosninga í Færeyjum eftir rúman mánuð. Næstu kosningar áttu að vera í desember. 25. febrúar 2026 16:44