Fékk starfið sem Guðmundur var orðaður við Aron Guðmundsson skrifar 30. mars 2026 23:00 Guðmundur Guðmundsson er án starfs þessa stundina eftir að leiðir hans og Fredericia skildu Vísir/Vilhelm Andy Schmid, landsliðsþjálfari karlaliðs Sviss í handbolta hefur verið ráðinn þjálfari HC Krienz-Luzern í Sviss. Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands var orðaður við starfið fyrir ekki svo löngu síðan.
Schmid mun sinna þjálfun HC Krienz-Luzern samhliða þjálfun svissneska landsliðsins en hann var sjálfur á mála hjá félaginu á sínum tíma sem leikmaður. Andy Schmid á hliðarlínunni í leik hjá Sviss á EM í upphafi árs.Vísir/Getty Í svissneskum miðlum fyrir ekki svo löngu síðan var Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands og nú síðast þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Fredericia orðaður við starfið. Í samtali við íþróttadeild Sýnar undir lok nóvember á síðasta ári sagðist Guðmundur ekki loka á neitt hvað varðar framhaldið í þjálfun en að það kæmi einnig til greina að snúa sér að einhverju allt öðru. Þjálfarinn reynslumikli hefur varið miklum tíma hér heima á Íslandi eftir að leiðir hans og Frederica skildu. „Undanfarin sextán ár hefur mér liðið eins og ég sé gestur í mínu eigin heimalandi. Ég hef verið að koma hingað í stuttan tíma yfir jólin og fer svo aftur. Yfir sumartímann hafa verið mislöng fríin, allt niður í þrjár vikur. Þá er maður að reyna gera allt mögulegt á stuttum tíma og hefur aldrei liðið eins og maður sé heima. Þetta er í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem mér líður eins og ég sé kominn heim.“
Handbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira