Við getum ekki firrt okkur ábyrgð Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 29. mars 2026 12:02 Það er kominn tími til að við hættum að tala um ofneyslu eins og hún sé bara persónulegt smekksatriði. Þetta er pólitískt mál, umhverfismál, réttlætismál og í sívaxandi mæli líka siðferðismál. Sérhver hlutur sem við kaupum, notum lítið eða ekkert og losum okkur svo við, skilur eftir sig spor. Hvort sem það er fatnaður, heimilisvara eða raftæki, þá er ekkert „saklaust“ við það að henda. Allt sem við kaupum hefur þegar kostað hráefni, orku, vatn, vinnuafl og flutning. Þegar við hendum hlutum erum við ekki bara að losa okkur við fatnað eða dót, við erum að samþykkja kerfi sem byggir á sóun sem sjálfsögðum lífsstíl. Það er nákvæmlega það sem hefur gerst Hér á landi höfum við byggt upp neyslusamfélag þar sem of margt fólk telur sig sýna ábyrgð ef það einfaldlega setur poka í fatagám eða gefur hluti á nytjamarkað. Auðvitað er betra að koma hlutum áfram en að henda þeim beint (þó meira að segja nytjamarkaðir séu farnir að hafna vissum hlutum því þar er svo mikið fyrir). En við megum ekki blekkja okkur sjálf, að gefa hluti til góðgerðamála eða setja í gjafagám er ekki syndaaflausn eða réttlæting fyrir að halda áfram neyslunni. Þetta er líka innilega á skjön við allt það sem við segjumst standa fyrir. Við tölum um sjálfbærni, loftslagsábyrgð og ábyrga neyslu. Við vitnum í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og stefnu um meðhöndlun úrgangs. En neysluhegðun landans segir eitthvað allt annað. Hún segir, kaupa meira, nota minna, skipta oftar út. Ef við meinum eitthvað með sjálfbærni þá verðum við að breyta hegðun okkar Vandinn er ekki fyrst og fremst hvað verður um hlutina þegar við erum hætt að nota þá. Vandinn er magnið sem við kaupum til að byrja með. Þess vegna þarf umræðan að breytast. Hún má ekki snúast eingöngu um flokkun, endurvinnslu og „græn“ innkaup. Hún þarf að snúast um nægjusemi, ábyrgð og hugrekki til að hafna þeirri hugmynd að stöðug neysla sé tákn um lífsgæði. Raunveruleg ábyrgð felst ekki í því að losa sig við umfram kaup og það sem við erum komin með leið á. Hún felst í því að kaupa sjaldnar, nota lengur, laga meira og hætta að taka þátt í kerfi sem étur upp auðlindir jarðar á kostnað komandi kynslóða. Höfundur er menntunarfræðingur og umhverfissinni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Umhverfismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar