Ertu Jón eða séra Jón? Guðný Björk Pálmadóttir skrifar 29. mars 2026 10:30 Í litlu samfélagi eins og okkar skiptir miklu að við getum treyst þeim ferlum sem stjórnvöld taka ákvarðanir út frá. Það getur verið erfitt að vera óháður í skoðunum þegar gamlir kunningjar, ættingjar og vinir eiga í hlut. Það er mannlegt og flestum eðlislægt að hugsa hlutina út frá eigin tilfinningum og gleyma því að rísa málum ofar og horfa á heildar myndina. Það er yfirvalda á hverjum stað að tryggja að til séu skýrir og faglegir ferlar sem starfsfólk hins opinbera getur fylgt, og geta þannig tekið faglegar og rökfastar ákvarðanir í öllum málaflokkum. Það er mér hjartans mál að fólk og málefni fái sanngjarna meðferð byggt á faglegum forsendum. Mikilvægt er að þeir sem standa í stafni gæti að heiðarleika, jafnræði og að heildar myndin sé höfð að leiðarljósi hverju sinni. Ég finn mig því vel í stefnu Viðreisnar sem leggur áherslu á skíra og gagnsæja ferla til að tryggja almannahagsmuni umfram sér hagsmuni. Er gagnsæi mikilvægt? Ábyrg stjórnsýsla byggir á gagnsæi og skýrum ferlum. Ef verklag er óljóst eða illa skjalfest, grefur það undan trausti almennings. Fólk vil sjá og skilja á hvaða forsendum ákvarðanir eru tekar, hvort meðferð mála sé réttlát eða hvort persónuleg tengsl hafi haft áhrif á niðurstöður. Afleiðingar ógagnsæis birtast í ójafnræði, tortryggni og aukinni hættu á mistökum. Þetta hefur bein áhrif út í samfélagið, þátttaka og áhugi íbúa á málefnum sveitarfélagsins minnkar. Þess vegna er gagnsæi ekki einungis formlegheit á blaði, heldur forsenda heilbrigðs lýðræðis og vandaðrar stjórnsýslu. Sitjum við öll við sama borð? Þegar einstaka einstaklingar fá einhverskonar forskot sem öðrum stendur ekki til boða, eða aukin tækifæri vegna persónulegra tengsla er talað um spillingu. Í minni samfélögum eins og okkar hér í Árborg, eru líkur á slíkum vinagreiðum meiri en gengur og gerist í stærri borgum þar sem líklegra er að fólk þekkist eða tengist á einhvern hátt. Frændhygli, jafnvel þó hún komi af góðum hug, grefur undan jafnræði og skaðar traust til yfirvalda sem getur tekið langan tíma að byggja upp aftur. Af hverju viljum við fyrirbyggja slíkt? Af hverju ekki bara að sveigja reglurnar til að koma málum hraðar og betur í gegn? Svarið er tvíþætt. Annars vegar er það siðferðið. Opinber valdbeiting á að byggjast á jafnrétti, gagnsæi og vönduðum vinnubrögðum, en ekki eiginhagsmuna ákvörðunum. Hins vegar er það hagsmunamál sveitarfélagsins í heild. Gagnsæir ferlar leiða til betri ákvarðana, draga úr álitamálum og spara bæði tíma og fjármuni. Samfélag sem tryggir að allir sitji við sama borð, óháð tengslum, stöðu eða stöðugildi er samfélag sem býr til raunverulegt traust og stöðugleika. Hver er lykillinn? Fyrsta skrefið í að fyrirbyggja spillingu er að vinna markvisst og stöðugt að uppbyggingu verklags, með áherslu á að gera það er einfalt, sýnilegt og skilvirkt. Verklagsreglur þurfa að vera skýrar og aðgengilegar þannig að: ·Íbúar viti hvaða leikreglur gilda. ·Starfsfólk hafi skýrar og skiljanlegar leiðbeiningar til að vinna eftir. ·Að kjörnir fulltrúar geti unnið á samræmdan hátt þvert á pólitík og eigin geðþótta. Kjarni málsins er, að þegar gagnsæi er til staðar dregur það úr tortryggni og ákvarðanir verða bæði faglegri og réttlátari. Það er mér því hjartans mál að berjast fyrir hagsmunum okkar allra með því að beita mér fyrir skýrum og gagnsæjum ferlum svo við fáum betri ákvarðanir og heilbrigðari stjórnsýslu sem íbúar geta treyst að vinni að heilindum. Gerum ekki greinamun á Jóni eða séra Jóni. Höfundur er nýsköpunarverkfræðingur, frumkvöðull og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stjórnsýsla Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar