Opið bréf til Ingu Sæland 29. mars 2026 08:30 Kæra Inga Sigurborg Eiríksdóttir heiti ég og er kennari. Ég er 26 ára og fann það á unglingsárum að kennarastarfið væri mín köllun. Ég er að ljúka mínum þriðja vetri í kennslu og langar að deila með þér almennum hugrenningum mínum varðandi starfið í ljósi frétta af minnisblaði þínu þar sem þú telur nauðsynlegt að fjölga kennsludögum og kennsluskyldu til að bæta námsárangur íslenskra barna. Við skulum byrja á að halda því til haga að kennsludagar á Íslandi eru í raun 180. Líkt og með svo margt annað er þetta ekki spurning um magn heldur gæði. Það er alveg sama hversu langt skólaárið er og hversu mikið er kennt, ef ekki verður ráðist í úrbætur á því sem mun raunverulega skila auknum árangri. Í því samhengi vil ég til að mynda nefna skort á námsefni. Á þessu skólaári hafa grunnskólar verið að innleiða nýútgefna aðalnámskrá með nýjum og endurbættum hæfniviðmiðum en lítið sem ekkert námsefni fylgdi með. Stór hluti af minni vinnu fer í að búa til eða uppfæra námsefni til þess að ég geti samviskusamlega metið hæfni nemenda. Það gefur auga leið að þá eru bæði ég og nemendur að fara á mis við mikinn tíma sem nota mætti frekar í að undirbúa kennsluna sjálfa, fara betur á dýptina og búa til fjölbreyttari verkefni. Auk þess væri hægt að einstaklingsmiða kennsluna enn betur. Á Íslandi er skólinn fyrir alla. Það er fallegt og eitthvað sem við sem samfélag megum vera stolt af. Nemendahópurinn er þar af leiðandi mjög fjölbreyttur og gjarnan þörf á einstaklingsmiðaðri nálgun. Ef gæða námsefni væri til og aðgengilegt fyrir alla skóla landsins væri þar búið að spara mikinn tíma sem væri til dæmis hægt að nýta í það göfuga og verðuga verkefni að mæta þörfum hvers og eins þeim mun betur. Þá sætu líka allir skólar í landinu við sama borð hvað varðar námsefni. Fjölbreyttur nemendahópur kallar einnig á fjölbreytt úrræði en því miður er mikill skortur á þeim inni í skólunum. Kennurum er því of oft stillt upp við þann vegg að leysa verkefni annarra fagaðila ásamt því að leggja sig fram við að sinna kennslunni. Það vantar aukna sálfræðiþjónustu í skólakerfið, atferlisfræðinga, stuðningsfulltrúa og svo mætti lengi telja. Þetta eru margir hattar sem kennarar bera ásamt því að nemendahópurinn er gjarnan allt of stór. Ein af öflugustu aðgerðunum til að bæta vellíðan kennara og ekki síst nemenda væri án efa að fækka nemendum í hverjum bekk, losa kennara við alla þessa auka hatta sem þeir þurfa að bera og gera þeim fært að starfa við það sem þeir eru menntaðir í, sem er kennsla. Vinnuvikan okkar er rúmar 42 stundir. Því miður er það raunin að á öllum þeim tíma næ ég samt ekki að komast yfir allt á verkefnalistanum. Eins og ég hef nefnt fer mikill tími í námsefnisgerð. Enn eru þó ótalin verkefni á borð við skipulagningu kennslunnar, vinna við bekkjarstjórnun og samskiptamál, teymisfundi vegna nemenda, öll foreldrasamskipti, vinna við greiningargögn og undirbúningur viðburða. Allt þetta er mikilvægt en farið að vega mun þyngra en kennslan sjálf. Lausnin er ekki að lengja skólaárið, lausnin er að fara betur með tímann. Þrátt fyrir vel reimaða skó, sem gera okkur kleift að hlaupa hratt og getuna til að bera marga hatta er kennarastarfið í dag án efa ekki það sem ungir kennarar sem eru að sinna sinni köllun sáu fyrir sér. Kennarar vilja kenna! Höfundur er ungur kennari sem er annt um framtíð kennarastarfsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar