Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. mars 2026 19:05 Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra hefur kynnt málið fyrir ríkisstjórn. Vísir/Vilhelm Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill lengja skólaár íslenskra grunnskólanemenda og fjölga kennslustundum. Fjöldi kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum á Íslandi er einn sá minnsti í Evrópu. Á sama tíma eru útgjöld á hvern nemanda þau mestu innan OECD en árangur nemenda í íslenskum grunnskólum undir meðaltali.
Inga Sæland lagði minnisblað fyrir ríkisstjórnina í vikunni þar sem segir að nauðsynlegt sé að taka umræðuna upp í kjarasamningsviðræðum kennara og gera starfsaðstæður þeirra sambærilegri við aðra opinbera starfsmenn. „Við erum ekki að standa okkur nógu vel þegar kemur að menntun barna okkar. Við borgum meira en kennum og uppskerum minna en þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Þessu vil ég snúa við og skoða meðal annars fjölgun kennsludaga með sveitarfélögum og skólasamfélaginu,“ segir í tilkynningu um minnisblaðið á vef Stjórnarráðsins. Skólaárið allt að 30 dögum lengra Þar er fjallað um misræmið á lengd skólaársins á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Skólaárið er 30 dögum lengra í Danmörku, 20 dögum lengra í Noregi, 17 dögum lengra í Finnlandi og 8 dögum lengra í Svíþjóð. „Alls eru 13 evrópsk menntakerfi með 10 ára skyldubundið grunnskólanám og teljast því sambærileg við Ísland þegar kemur að kennslustundum á grunnskólagöngunni. Lögbundinn kennslutími yfir grunnskólagönguna í þessum ríkjum nær frá 7.616 klukkustundum á Íslandi upp í 10.600 klukkustundir í Danmörku. Það þýðir að börn í íslenskum grunnskólum fá sem nemur fjórum kennsluárum færri en dönsk börn á sinni grunnskólagöngu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Árangur verulega undir meðaltali Jafnframt kemur fram að samhliða öllu þessu sé íslenskt grunnskólakerfi kostnaðarsamt í alþjóðlegum samanburði. Útgjöld til grunnskóla og framhaldsskóla nema hér 5,6 prósentum af landsframleiðslu samanborið við 4,7 prósenta meðaltal OECD-ríkja. „Árangur 15 ára nemenda í íslenskum grunnskólum í PISA 2022 er hins vegar óumdeilt verulega undir OECD-meðaltali í stærðfræði, lesskilningi og náttúrufræði.“
Skóla- og menntamál PISA-könnun Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ Sjá meira