Vinícius Júnior: Brasilía er ekki eitt af sigurstranglegustu liðum HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2026 07:02 Vinicius Junior í vináttulandsleiknum á móti Frökkum sem Brasilíumenn töpuðu 2-1. Getty/Michael Owens Brasilíska risastjarnan Vinícius Júnior segir að Brasilía eigi hvorki skilið né vilji fá titilinn sem eitt af þeim liðum sem teljast vera sigurstranglegust á HM í fótbolta í sumar. „
Ég tel að landsliðið okkar sé ekki sigurstranglegt miðað við úrslitin sem við höfum náð,“ sagði framherjinn frá Real Madrid. „En mikilvægi þess að klæðast treyjunni og geta leikmannanna sem við höfum hér þýðir að við ætlum að gera allt til að koma Brasilíu aftur á toppinn. Við viljum ekki vera sigurstranglegasta liðið en við viljum koma Brasilíu á toppinn,“ sagði Vinicius. Unnu heimsmeistaratitilinn síðast 2002 Brasilía hefur unnið HM fimm sinnum, en síðasti sigurinn var árið 2002, fyrir næstum því aldarfjórðungi síðan. Besti árangur þeirra frá þeim titli var fjórða sæti árið 2014, þegar Brassarnir voru á heimavelli. Carlo Ancelotti tók við þjálfun liðsins í maí síðastliðnum eftir að hafa yfirgefið Real Madrid og síðan hefur Brasilía náð misjöfnum árangri. Ítalinn stýrði liðinu til tveggja sigra, eins jafnteflis og eins taps þegar Brasilía endaði í fimmta sæti í undankeppni HM. Í landsleikjahléinu í október sigraði Brasilía Suður-Kóreu en tapaði óvænt fyrir Japan, áður en liðið vann sigur gegn Senegal og gerði jafntefli við Túnis í nóvember. Vinícius telur að Ancelotti, sem hann spilaði fyrir hjá Madrid, hafi gefið liðinu forskot. Þurftum bara að smella saman „Við þurftum bara að smella saman. Eftir að Ancelotti kom höfum við betri hugmynd um hvernig við eigum að spila. Hann tekur mikla pressu af okkur,“ sagði Vinicius. Sumir sjá vonir Brasilíu á HM séu beintengdar frammistöðu Vinícius, þrátt fyrir að hann hafi aðeins skorað átta mörk í 45 landsliðsleikjum. Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað sautján mörk og lagt upp átta í 43 leikjum fyrir Real Madrid á þessu tímabili. Hefur ekki verið hamingjusamari „Ég hef ekki verið hamingjusamari. Allt sem ég geri hjá Real Madrid vonast ég til að gera hér með landsliðinu. Ég gef ekki mikinn gaum að því hvað fólk segir. Ég þekki mitt starf og hversu einbeittur ég er á HM,“ sagði Vinicius. „Það er þar sem allir leikmenn vilja vera. Hvað varðar mitt form, þá reyni ég alltaf að vera í mínu besta formi, skora mörk og leggja upp. Ég ímynda mér að allir vilji að ég sé einn af aðalmönnum liðsins. Ég er tilbúinn fyrir allar áskoranir á ferlinum mínum. Ég hef þegar spilað á HM og ég vil ekki tapa aftur,“ sagði Vinicius. Brasilía byrjar heimsmeistaramótið gegn Marokkó 13. júní en þeir munu einnig mæta Skotlandi og Haítí í C-riðlinum.
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira