Of stór biti að kyngja án íbúakosningar Þórarinn Þórarinsson skrifar 27. mars 2026 15:19 Sveitarstjórn sló í vikunni íbúakosningu um nýja menningarhúsið á Króknum út af borðinu í kjölfar þess að Daniel Þór tilkynnti fyrirhugaða undirskriftasöfnun til þess að þrýsta á um að málið yrði lagt í dóm íbúa. „Ég er mjög óánægður með þá ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar að veita ekki íbúum möguleika á að kjósa um menningarhús,“ segir Daniel Þór Gunnarsson sem hugðist með undirskriftasöfnun þrýsta á um íbúakosningu sem sveitarstjórn Skagafjarðar sló út af borðinu á miðvikudag.
Daniel Þór segir upplýsingagjöf meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar um menningarhúsið fyrirhugaða hafa verið ófullnægjandi. „Ég tel það liggja í augum uppi að möguleiki sé á því að kominn sé sú staða að ákvörðun um að hefja byggingu á menningarhúsinu sé tekin án þess að fullnægjandi upplýsingar og umræða liggi fyrir,“ segir Daniel. „Það gera sér allir grein fyrir því að rekstur sveitarfélags gengur ekki ef bera eigi allar ákvarðanir sveitarstjórnarinnar undir íbúa í íbúakosningum. Mér finnst samt sem áður ekkert óeðlilegt að verkefni og ákvarðanir af þessari stærðargráðu og geta orðið íþyngjandi til framtíðar fyrir rekstur sveitarfélagsins séu borin undir íbúa.“Þá áréttar hann að ef til vill hafi umræðunni verið snúið þannig að hann sé alfarið á móti því að sveitarfélagið reisi nýtt menningarhús. „Ég tel því mikilvægt að endurtaka að ég hef ekkert á móti því. Ég vil bara að það sé gert í sátt og samlyndi við íbúa með forsvaranlegum hætti. Að mínu mati hefði verið bæði eðlilegt og einfalt að efna til íbúakosningar samhliða sveitarstjórnarkosningum þar sem raunverulegur vilji íbúa kæmi í ljós.“
Skagafjörður Menning Mest lesið Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Eftirförin endaði með hvelli þegar hópur lögreglumanna skellti sér á ökumanninn Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Fleiri fréttir Eftirförin endaði með hvelli þegar hópur lögreglumanna skellti sér á ökumanninn „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Sjá meira