Steinar Kaldal: Við duttum, misstum ísöxina og kúturinn kláraðist Sverrir Mar Smárason skrifar 26. mars 2026 22:01 Steinari Kaldal tókst að halda Ármanni í Bónusdeildinni. Vísir / Anton Brink Steinar Kaldal þjálfari Ármanns var í sjöunda himni þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna. Hann kom beint úr fögnuði í klefanum.
Ármann vann þrjá síðustu leiki sína í deildinni og tókst að halda sæti í Bónusdeild karla fyrir 2026-27 tímabilið. „Okkur líður auðvitað bara stórkostlega, það er mikill fögnuður. Ég er að reyna að setja þetta í eitthvað samhengi. Ég hef unnið Íslandsmeistaratitla með KR en þessi tilfinning er bara annað,“ sagði Steinar. Ármann, þið eruð með lítið súrefni í kútnum „Ég var að hugsa þetta á leiðinni í leikinn. Ármann var svolítið eins og fjallgöngugarpur í grunnbúðum Everest með ellefu öðrum. Það var sagt að núna eigi allir að komast upp á topp, en Ármann, þið eruð með lítið súrefni í kútnum. Okei við vissum það, alvöru trú og við höldum áfram.,“ sagði Steinar. „Við duttum, misstum ísöxina og kúturinn kláraðist. Það er bara viljinn í þessum strákum sem skilaði okkur með hinum níu á toppinn. Það er bara sú tilfinning. Menn héldu að við værum bara að gutla á Esjunni í gúmmístígvélum,“ sagði Steinar. Ég er bara mjög hátt uppi „Eins og þið heyrið þá er ég bara mjög hátt uppi, hrikalega glaður og stoltur af strákunum. Stuðningsmennirnir sem mættu og stjórnin, bara takk. Svona lítill klúbbur sem er búinn að taka svona hröð skref er bara mjög gaman að taka þátt í,“ sagði Steinar. Það var auðvitað annar leikur sem gat haft áhrif á niðurstöðuna í kvöld þar sem Grindavík mætti Þór Þorlákshöfn. Þeim leik lauk með sigri Grindavíkur töluvert áður en leikurinn kláraðist á Akranesi. „Ég bað strákana um að vera bara í núinu og ekkert að pæla í hinum leiknum. Við vildum vinna. Oddur aðstoðarþjálfari var með síma og lét mig vita þegar það voru þrjár mínútur eftir af okkar leik að Grindavík væri búið að tryggja sinn sigur. Svo ég vissi það þá. Ég var samt bara einhvern veginn áfram einbeittur á að vinna þennan leik. Við vildum klára með sigri,“ sagði þjálfari Ármanns. Það er risastórt Sigurviljinn skein í gegn undir lokin hjá gestunum sem höfðu fyrir leikinn unnið tvo leiki í röð. „Það er risastórt „statement“ að klára tímabilið með þremur sigrum í röð og taka lokasprettinn. Eins og ég kom inn á áðan þá er það þessi vilji og þessi trú í þessum strákum og ákveðið æðruleysi líka í gegnum allan súrefnisskortinn sem við glímdum við. Að klára þetta svona er yndislegt,“ sagði Steinar að lokum.
Bónus-deild karla Ármann Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira