Dýrt að taka þátt í HM eftir ný lög Donalds Trump Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2026 23:15 Stuðningsmenn Fílabeinsstrandarinnar verða væntanlega ekki fjölmennir á HM. Getty/liewig christian Heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar heldur áfram að vera í brennidepli hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Nýtt stjórnmálafrumkvæði hans gæti komið í veg fyrir að stuðningsmenn komi til Bandaríkjanna en fyrir þá sem eiga mikinn pening er aftur á móti möguleiki. Donald Trump hefur áður kynnt til sögunnar eins konar innborgunarkerfi fyrir ferðamenn frá nokkrum löndum og listinn yfir þá sem verða fyrir áhrifum virðist ætla að lengjast. From @TheAthleticFC: World Cup fans from several nations must deposit up to $15,000 in bonds to be granted a tourist visa to enter the U.S. FIFA is privately pressing the Trump administration to make exemptions for players. https://t.co/RVkTzjskJl— The New York Times (@nytimes) March 25, 2026 Meðal annars vill stjórn Trumps að fimm lönd sem eru búin að tyggja sig inn á HM, eða Alsír, Grænhöfðaeyjar, Fílabeinsströndin, Senegal og Túnis, verði nú með á þessum lista. Þetta gæti haft mikil áhrif á HM í sumar. Að koma til Bandaríkjanna frá einu af löndunum sem verða fyrir áhrifum getur verið dýrt. Til að ferðast inn í landið gæti þurft að greiða allt að fimmtán þúsund dollara innborgun, um 1,9 milljónir íslenskra króna, að því er The Guardian greinir frá. Því má gera ráð fyrir að landslið þessara þjóða fái lítinn stuðning á leikjum sínum en samkvæmt blaðinu eru meðallaun þeirra rétt undir 530 þúsund íslenskum krónum á ári. Áhorfendastraumur á HM hefur þegar verið hamlaður vegna hás miða- og hótelverðs, sem og erfiðra og langra vegabréfsáritunarferla. Einnig er greint frá því að engar undantekningar verði gerðar fyrir leikmenn eða stjórnendur og þess vegna gætu viðkomandi sambönd verið neydd til að eyða mörgum milljónum til að koma liði sínu og starfsmönnum inn í Bandaríkin. Heimsmeistaramótið verður haldið, auk Bandaríkjanna, í Mexíkó og Kanada og hefst 11. júní. Úrslitaleikurinn verður leikinn 19. júlí. Fans from several countries participating in this summer’s World Cup must deposit up to $15,000 in bond payments to be granted a tourist visa to enter the United States, while organiser FIFA is privately pressing the Trump administration to make exemptions for players.The… pic.twitter.com/TpNwftkXpP— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 25, 2026
HM 2026 í fótbolta Donald Trump Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira