Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. mars 2026 16:30 Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjármálaáætlun fyrir 2027-2031 síðdegis. Vísir/Vilhelm Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur lagt fram fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Í henni kemur fram að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður árið 2027 og skuldahlutfall hins opinbera lækkað markvisst á tímabilinu. Meðal hagræðingaraðgerða sem hann boðar er fækkun stöðugilda hjá ríkinu um eitt prósent.
Í fréttatilkynningu þess efnis á vef stjórnarráðsins segir að markmið áætlunarinnar sé að skapa stöðugleika í efnahagslífinu til að takast á við breyttar aðstæður. „Undanfarin ár hafa einkennst af hægari hagvexti og meiri óvissu en áður. Þessum aðstæðum þarf að sýna viðspyrnu með skýrri forgangsröðun og ábyrgri stefnu í ríkisfjármálum. Bætt afkoma ríkissjóðs leggur grunn að lægri verðbólgu og þ.a.l. lægra vaxtastigi, sem hefur bein og jákvæð áhrif á heimili og fyrirtæki.“ Um tvö hundruð stöðugildi undir Þá segir að áhersla sé lögð á að halda aftur af vexti ríkisútgjalda og halda honum vel innan marka stöðugleikareglu, ásamt því að einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur. Áfram verði unnið að því að lækka skuldahlutfall hins opinbera og er áætlað að það lækki úr 44% af landsframleiðslu árið 2026 í 41% árið 2031. Þá eru nýjar hagræðingaraðgerðir boðaðar en meðal þeirra er eins prósents fækkun stöðugilda hjá ríkinu þar sem stefnt er að því að spara tæplega fjóra milljarða króna árlega, án skerðingar á grunnþjónustu. Tekjur ríkissjóðs verði styrktar með frekari umbótum á skattkerfinu. Samkvæmt vefnum Rikisreikningur.is eru um 20 þúsund stöðugildi hjá ríkinu og má því ætla að stöðugildum verði fækkað um tvö hundruð. Fram kemur að skýr áhersla sé lögð á öfluga uppbyggingu og markvissa fjárfestingu. „Forgangsröðun fjármuna tryggir að áfram verði fjárfest í grunninnviðum, sérstaklega í heilbrigðiskerfi, samgöngum, málefnum barna, menntamálum og öðrum lykilmálaflokkum sem styðja við verðmætasköpun, lífskjör og aukin lífsgæði,“ segir í tilkynningu. „Staða íslenska hagkerfisins er í grunninn sterk og horfur til lengri tíma jákvæðar. Aðstæður krefjast þess þó að áfram sé haldið af festu og ábyrgð. Þegar ríkissjóður er vel rekinn þá gengur Íslandi vel. Með skýrri stefnu í ríkisfjármálum er lagður grunnur að stöðugra efnahagslífi og bættum lífskjörum til framtíðar,“ er að lokum haft eftir Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Viðreisn Efnahagsmál Vinnumarkaður Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira