„Ekki fallegur sigur og áttum hann eiginlega ekki skilið“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2026 22:22 Björgvin Páll Gústavsson varði tíu skot í leik kvöldsins gegn HK. vísir/Anton Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, gat leyft sér að anda léttar eftir torsóttan þriggja marka sigur gegn HK í framlengdum leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í handbolta í kvöld. „
Heldur betur. Þetta var ekki fallegur sigur og við áttum hann eiginlega ekki skilið. HK-ingar voru frábærir í dag og gerðu allt sem HK stendur fyrir. Það var mikið hjarta í þessu hjá þeim og þeir komu okkur eiginlega bara á óvart með gæðunum í leiknum. Þeir héldu í við okkur og voru frábærir. Því þá fallegra að klára þetta,“ sagði Björgvin í leikslok. „“Hann segir orkustigið í HK ekki hafa komið Valsmönnum á óvart. „Nei, ekki endilega. Þeir voru bara að gera þetta svo klókt. Þeir spiluðu mjög vel sóknarlega og voru að koma okkur í vandræði. Svo héldu þeir líka vel út varnarlega og mættu okkur í öllu. Þeir komu bara með orku í dag sem við reyndum að mæta, en við vorum aðeins of lengi að koma okkur í úrslitakeppnisgírinn. Það kom aðeins í seinni hálfleik og þá fór þetta aðeins að ganga hjá okkur.“ „Við vorum í brasi eiginlega allan tímann. En að vera í brasi í 55 mínútur og vinna leikinn sýnir styrkleika.“ Þá segir hann að liðið hafi sýnt mikinn karakter að hafa náð að snúa dæminu við eftir að hafa lent fimm mörkum undir í seinni hálfleik. „Klárlega. Það hefði verið auðvelt að panikka og láta stressið taka yfir. En þetta sýnir bara stærðina í þessu. Við erum helvíti góðir í handbolta og við vitum líka að við erum með góða breidd og marga góða leikmenn. Þegar leikurinn er 60 eða 70 mínútur þá yfirleitt endum við uppi sem sigurvegarar ef við höldum rétt á spilunum.“ Að lokum bendir Björgvin á nokkra hluti sem Valsliðið þarf að laga fyrir næsta leik gegn HK á sunnudaginn til að klára einvígið. „Mér fannst við ekkert hræðilegir í þessum leik. Við vorum kannski ekki að slútta nógu vel og með aðeins of marga tæknifeila. Svo var ég lélegur fyrstu 40 mínúturnar og þá er þetta erfitt. Þannig að ég þarf að laga minn leik og hinir að líta í eigin barm, en við erum á fínum stað með þetta,“ sagði Björgvin að lokum.
Olís-deild karla HK Valur Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Strax aftur á sigurbraut Selfoss - Fram | Barist við botninn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut Sjá meira