Zinedine Zidane tekur við franska landsliðinu í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2026 18:00 Zinedine Zidane hefur ekki þjálfað lið í fimm ár eða síðan hann var síðast með Real Madrid. EPA-EFE/JUANJO MARTIN Zinedine Zidane hefur gert munnlegt samkomulag um að taka við franska fótboltalandsliðinu samkvæmt heimildum franskra fjölmiðla.
Zinedine Zidane mun taka við af Didier Deschamps sem þjálfari franska karlalandsliðsins í knattspyrnu í sumar, en munnlegt samkomulag hefur þegar náðst milli fyrrverandi stjörnu Real Madrid og franska knattspyrnusambandsins að því er heimildir Le Parisien herma. Équipe de France : Zidane à la tête des Bleus, c’est comme si c’était fait➡️ https://t.co/TohK0tU0u0 pic.twitter.com/SaqZNbFEfS— Le Parisien (@le_Parisien) March 22, 2026 Brottför Didier Deschamps frá franska landsliðinu kemur eftir fjórtán farsæl ár en það hefur verið verst geymda leyndarmálið í franskri knattspyrnu að hann væri að hætta. Zidane, sem lauk sínu öðru tímabili sem stjóri Real Madrid árið 2021, hefur lengi verið ætlað þetta hlutverk. Zidane, sem er 53 ára, hefur beðið eftir því að samherji hans frá HM 1998 myndi hætta svo hann gæti tekið við starfinu. Hann hefur þurft að bíða lengur en hann bjóst við í fyrstu en hann verður formlega ráðinn þegar HM 2026 er lokið fyrir Frakkland. Síðasta atriðið sem þarf að ganga frá áður en hann getur skrifað undir samninginn snýr að starfsliði hans og hversu stórt teymi hans getur verið. Í viðtali við franska dagblaðið Le Figaro sem birtist á sunnudag viðurkenndi forseti FFF, Philippe Diallo, í fyrsta sinn að hann vissi hver eftirmaður Deschamps yrði. „Ég veit hver það er,“ var svar hans. Hann gaf ekki upp nafn Zidane en heimildir annarra franskra miðla hafa staðfest nafn hans. Zinedine Zidane will succeed Didier Deschamps as France national team head coach in the summer, with a verbal agreement already reached, sources have told @LaurensJulien. He will officially be appointed once the 2026 World Cup is concluded for France. pic.twitter.com/w0fzvaU5cc— ESPN FC (@ESPNFC) March 23, 2026
Franski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Sjá meira