Veður

Breiðholts­braut lokað vegna um­ferðaróhapps

Agnar Már Másson skrifar
Breiðholtsbraut var lokað en nú er aftur opið fyrir umferð um nýju brúna.
Breiðholtsbraut var lokað en nú er aftur opið fyrir umferð um nýju brúna. Vegagerðin

Breiðholtsbraut var lokað við Jaðarsel eftir að bíl var ekið upp á kant. Nú hefur aftur verið opnað fyrir umferð undir nýju brúna á Breiðholtsbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs en hraði tekinn niður á svæðinu.

Á umferðarvef Vegagerðarinnar var greint frá því að Breiðholtsbraut hafi verið lokað við Jaðarsel vegna umferðaróhapps. Veginum var lokað um klukkan 15 en samkvæmt nýjustu uppfærslu hefur vegurinn verið opnaður á ný en hraði tekinn niður á svæðinu.

Einum bíl var ekið upp á kant, þar sem hann festist, að sögn Harðar Lilliendahlm, varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann sagði að búið væri að koma bílnum af vettvangi en að verktakar ynnu að því að moka veginn áður en hann verður opnaður á ný.


Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.


Stefán Kristinsson, varðstjóri slökkviliðsins, segir að slökkviliðið hafi ekki sent sjúkraflutningabíla á vettvang.

Slökkvilið sagði einnig að nokkurra bíla árekstur hefði orðið Vesturlandsvegi í átt að Mosfellsbæ, en umferðardeildin vildi ekki kannast við það.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×