Litlir karlar sem leiðist lýðræði Björg Eva Erlendsdóttir skrifar 21. mars 2026 15:31 Við lifum undarlega tíma. Loftslagsvá, hamfaraveður, stríð og fólk á flótta. Mannréttindum, tegundum og náttúru hrakar. Náttúruvernd er týnd, lýðræði víkjandi og fólk upplifir bakslag sem er rætt á kvennaráðstefnum og í minnihlutahópum. Bakslagið hefur mörg andlit, frá hreinum hryllingi niður í frekju og barnaskap. Það birtist í Trump, í vinahópi Epsteins, á Alþingi, á ársfundum stórfyrirtækja, hjá Maga hreyfingunni og Mogganum og áfram mætti lengi telja. Bakslag í litlu landi Bakslagið læðist að okkur öllum, með skorti á samráði, upplýsingaóreiðu, flausturslegum stjórnvaldsákvörðunum og einhliða opinberri umræðu. Á stórfundum atvinnulífsins heyrist eitt sjónarmið, þaulæft sjálfshól og ekkert annað, gott nýlegt dæmi er ársfundur Landsvirkjunar. Á Alþingi er hrært í áætlunum eftir pólitískum geðþótta eins og áralöng vinna í víðtæku samráði skipti engu. Á Alþingi eru samþykkt bráðabirgðalög til að núlla Hæstaréttardóm sem stöðvar virkjanaframkvæmd. Landsvirkjun talar um lög og dómsúrskurði, sem ómerkileg formsatriði. Umhverfisráðherrann boðar eignarnám til þess að flýta fyrir uppbyggingu raflína. Ríkisstjórnin og Alþingi einfalda og stytta ferla til að létta stórfyrirtækjum lífið. Þjóðlendur eru gefnar ferðamannastóriðjunni og á hálendinu eru hugmyndir um vindmyllur á án hæðartakmarkana. Bakslag í lítilli sveit Hvað höfðingjarnir hafast að hinir halda sér leyfist það. Eitthvað slíkt gæti hafa skotist gegnum haus oddvita í lítilli en mjög fallegri sveit, sem á dögunum tilkynnti einhliða slit á samstarfi við kjörinn fulltrúa í sveitarstjórn sinni. Framvegis ætlar hann halda upplýsingum frá fólkinu á lista minnihlutans og svipta það lýðræðislegu umboði sínu. Oddvitanum finnst „framganga U-listans í Skeiða- og Gnúpverjahreppi slíkur trúnaðarbrestur“ að ekki séu „forsendur fyrir upplýsingagjöf eða samstarfi við listann í sveitarstjórn.“ Því hyggst oddvitinn vinna áfram „náið“ og „eingöngu með öðrum fulltrúum í sveitarstjórn.“ Listinn sem á að útiloka á frá lýðræðinu hefur unnið að náttúruvernd. Lög hafa verið brotin á því fólki áður. Pínulítið dæmi en í stóru samhengi. Bakslag og vanmáttur á heimsvísu Á samfélagsmiðlum ganga nú gerfigreindarmyndir af Trump Bandaríkjaforseta sem smábarni að vera geggjað frekur og heimskulegur í hópi annarra smábarna sem hafa andlit meðvirkra þjóðarleiðtoga. Þeir hlæja hrifnir af bulli Trumps. Frábær lýsing á litlum körlum sem eru leiðir á lýðræði og ráða ekki við stjórna. Á meðan falla sprengjur, börn deyja og borgir hrynja. En heimsmarkaðsverð á olíu veldur helstu áhyggjum í heimi forréttindapésanna. Þær áhyggjur geta fljótt orðið alvarlegri. Bilið milli vanmáttar og ofbeldis er stutt. Við sjáum fréttir af hnignun lýðræðis í hvert skipti sem við erum í skapi til að opna fjölmiðil. Lýðræði og náttúra eru fjöregg hamingju Það kann að þykja ruddalegt að líkja stjórnarháttum á friðsama Íslandi við stjórnir hervelda í stríði. Enda er ég ekki að því. Íslendingar eru næst hamingjusamasta þjóð í heimi og friðsöm svo af ber. Sendiherra hamingjunnar frá Finnlandi, sem vermir fyrsta sætið á hamingjulistanum, segir að lýðræði, góð samskipti, sjálf náttúran og heimspeki Múmínálfanna séu lykillinn. Norrænar þjóðir hafa það gott. En það eru blikur á lofti, hér eins og allsstaðar. Hnignunin læðist að og að þegja er meðvirkni. Við þurfum að muna hverja stund að okkar fjöregg eru lýðræðið og náttúran. Hvorugt er sjálfgefið. Ég vil ekki trúa því að við séum orðin leið á lýðræðinu, hvorki almenningur né ráðamenn. Því er ég bjartsýn á að forstjóri Landsvirkjunar komi niður af sjálfshóli sínum, nestaður virðingu fyrir réttaríkinu. Að ráðherrann og Alþingi taki upp samráð í stað eignaupptöku og flýtimeðferða, og að pínulitli oddvitinn í fallegu sveitinni biðjist afsökunar á pínulítið heimskulegri valdníðslu sinni og virði lýðræðið eins og við flest viljum gera. Þá mun vel fara. Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Eva Erlendsdóttir Umhverfismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar