Fékk högg frá kú og þarf að taka sér hlé Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 08:32 Jasmina Suter passar sig eflaust betur í framtíðinni á því hvernig hún umgengst búfénað. Samsett/Getty Svissneska skíðastjarnan Jasmina Suter keppir ekki meira á þessu keppnistímabili og er ástæðan ansi óvenjuleg. Hún fékk nefnilega höfuðhögg frá kú.
Suter var staðráðin í að stimpla sig inn í úrslitahluta heimsbikarsins í alpagreinum sem fram fer í Noregi næstu daga en náði ekki nægilega mörgum stigum í síðustu mótunum fyrir úrslitin. Hún keppti á mótunum tveimur í risasvigi í Andorra um síðustu mánaðamót en féll úr keppni í fyrra mótinu og endaði í 46. sæti í því seinna. Hún varð svo í 47. sæti í Val di Fassa í kjölfarið. Nú hefur Suter komið með sínar skýringar á því að hún komst ekki í hóp þeirra 25 bestu sem fá að keppa í úrslitum heimsbikarsins í risasvigi. Heimsókn hennar á býli foreldra hennar virðist hafa haft þær afleiðingar. „Smá fréttir af mér. Rétt áður en ég fór til Andorra þá fékk ég högg í höfuðið frá kú,“ skrifaði Suter á Instagram og var fljót að taka fram að ekki væri um grín að ræða. View this post on Instagram A post shared by Jasmina Suter (@jasminasuter) „Ég reyndi að komast í heimsbikarsúrslitin en því miður gekk það ekki upp. Höfuðið mitt þarf einhvern tíma til að jafna sig svo að ég mun taka mér smáhlé núna,“ skrifaði Suter. Gekk fyrir aftan kýrnar og fékk spark Svissneska skíðasambandið hefur nú staðfest meiðsli Suter við svissneska miðla: „Hún var að hjálpa foreldrum sínum sem eiga fjós með kúm. Hún gekk fyrir aftan kýrnar þegar ein þeirra sparkaði skyndilega í höfuð hennar,“ sagði í svari sambandsins. Ekki er ljóst hvort tímabilinu er alveg lokið hjá Suter og hvort hún taki þá þátt í svissneska meistaramótinu þar sem keppt verður í bruni 9. apríl og risasvigi tveimur dögum síðar.
Skíðaíþróttir Mest lesið Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Íslenski boltinn Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Enski boltinn Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Formúla 1 Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Fótbolti Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Fótbolti Versta byrjun í sögu FH Íslenski boltinn Orri á skotskónum Fótbolti Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Handbolti Fleiri fréttir Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Í beinni: Mikið í húfi í lokaumferðinni Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Barcelona Evrópumeistari Guðrún vann Íslendingaslaginn og Kristianstad í brasi Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira