Bætum heimaþjónustu aldraðra Margrét Björk Ólafsdóttir skrifar 18. mars 2026 15:00 Hlutfall aldraðra í samfélaginu hækkar stöðugt. Bætt heilsa og betra heilbrigðiskerfi hafa gert það að verkum að flestir geta búist við að lifa langt fram yfir sjötugt. Árið 2030 verður einn af hverjum sex íbúum jarðar 60 ára eða eldri og árið 2050 mun fjöldi fólks 60 ára og eldri tvöfaldast og gert er ráð fyrir því að fjöldi fólks 80 ára og eldri þrefaldist á milli 2020 og 2050. Að sama skapi mun yngra fólki hlutfallslega fækka. Leitum nýrra lausna Það mun alltaf vanta hjúkrunarheimili en það á ekki að vera fyrsti valkostur. Stefna íslenskra stjórnvalda er að aldraðir geti búið sem lengst heima. Göfugt markmið sem einungis mun nást ef hægt verður að bjóða eldri borgurunum upp á þjónustu sem gerir þeim kleift að lifa eðlilegu lífi heima fyrir. Eins og stefnir þá munum við ekki hafa yfir að ráða nægjanlegum fjölda heilbrigðisstarfsmanna til að sinna þessum aukna fjölda eldri borgara og hvað ætlum við sem samfélag að gera þá? Til að mæta breyttum aðstæðum þurfum við að finna nýja lausnir og horfa til nýrra leiða til að þjónusta aldraða. Hér er tæknin með okkur og miklar framfarir við hjúkrun hafa komið fram á síðustu árum. Við verðum að nýta okkur tækni og nýjungar á þessu sviði til að gera heimaþjónustu hagkvæmari þannig að hægt verði að bæta aðra þjónustu við eldri borgara og gera þeim kleift að búa heima hjá sér eins lengi og hægt er. Ég hef í minni vinnu sem heilbrigðisstarfsmaður stýrt og verið leiðandi á þessari vegferð. Undanfarin ár hefur Heilsugæsla HSU verið brautryðjandi í fjarheilbrigðislausnum sem bæði hefur bætt þjónustu við eldri borgara og gert hana hagkvæmari. Árið 2023 stofnaði HSU heimaspítala eftir sænskri fyrirmynd til að draga úr innlögnum eldra fólks á sjúkrahús ásamt því að hefja fjarvöktun fyrir skjólstæðinga sína. Þrátt fyrir efasemdir starfsmanna í upphafi hefur reynslan sýnt að breytt verklag hefur gert heilbrigðisstarfsmönnum á heilsugæslunni auðveldar að takast á við aukin verkefni sem og aukin fjölda skjólstæðinga án þess að það hafi komið niður á gæðum þjónustunnar. Það sem gerðist líka var að skjólstæðingar heilsugæslunnar upplifðu ekki að þeir væru að fá verri þjónustu. Tækninýjungar til bættrar þjónustu Heilsugæslan útvegar skjólstæðingum sínum tæki til að mæla ýmsa þætti sem hafa áhrif á heilsu. Niðurstöður mælinganna sendast svo sjálfkrafa í kerfi heilsugæslunnar þar sem hjúkrunarfræðingar skoða og meta mælingar og ef þörf krefur hefur samband við skjólstæðinga, annaðhvort í formi skilaboða, myndsamtala eða símtala allt eftir þörfum og tilefni hverju sinni. Þetta nýja verklag hefur gert hjúkrunarfræðingum auðveldara að sinna fleiri skjólstæðingum en áður, þar sem áður þurftu starfsmenn heilsugæslunnar að fara í heimsókn til hvers og eins skjólstæðings. Mikilvægt er að tækninýjungar og hagræðing sem af þeim hljótast séu ekki aðeins nýttar til hagræðis heldur líka til að bæta þjónustu. Nú er staðan sú að sveitarfélagið Árborg hefur í nafni sparnaðar dregið saman í þrifum hjá eldri borgurum til að sinna annarri þjónustu sem þykir mikilvægari til eldri borgara. Hvernig væri að nota tækni eins og sjálfvirka lyfjaskammtara og fækka þeim innlitum og nýta mannskapinn í önnur verk. Með svona einfaldri lausn er ekki verið að skerða þjónustu heldur nota tæknina til gefa starfsfólki svigrúm til að sinna öðrum verkefnum eins og nauðsynlegum þrifum. Höfundur er hjúkrunarstjóri skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árborg Eldri borgarar Mest lesið Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir Skoðun Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan skrifar Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Aldursvæn samfélög – verkefni nýrra sveitarstjórna Halldór S. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson Skoðun
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar
Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson Skoðun