Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2026 13:49 Endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi. Sorpa Endurvinnslustöðvar Sorpu í Jafnaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavog munu í lok mánaðar hætta að taka á móti rúmfreku rusli vegna framkvæmda eins og múrbroti, timbri, innréttingum, flísum og ónýtum húsgögnum.
Í tilkynningu segir að aðeins verði tekið á móti almennu rusli sem falli til frá heimilum á þessum stöðvum og verði stöðvarnar í Jafnaseli og á Dalvegi skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar sem taki á móti þrjátíu flokkum í stað fjörutíu eins og undanfarin ár. „Áfram verður tekið á móti öllu rusli á stóru endurvinnslustöðvum SORPU í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og Sævarhöfða. SORPA hefur jafnframt lengt opnunartíma endurvinnslustöðva sinna en þær opna nú allar kl. 09:00 og eru opnar til 19:00 alla daga að undanskilinni endurvinnslustöðinni í Blíðubakka sem opnar kl. 12:00 og lokar kl. 18:30. Eftirfarandi flokkar verða teknir út við Dalveg og Jafnasel og þurfa íbúar á höfuðborgarsvæðinu að fara með þá flokka á stórar endurvinnslustöðvar: Málað timbur Ómálað timbur Hjólbarðar Flísar Hreinlætistæki Rúðugler Gifs Möl og sandur Heyrúlluplast Grófur úrgangur eins og ónýt húsgögn og rúmdýnur Stórir málmhlutir eins og ónýt reiðhjól og gasgrill Haft er eftir Gunnari Dofra Ólafssyni, sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu að markmið breytinganna sé að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á starfsvæði stöðvanna á Dalvegi og í Jafnaseli. „Endurmörkun stöðvanna byggir á vinnu starfsfólks SORPU og sveitarfélaganna sem að henni standa, og stjórn SORPU. Stöðvarnar hafa um nokkra hríð verið of litlar til að taka á móti öllum þeim gestum sem á þær koma, og þarf því að takmarka þann fjölda flokka sem tekið verður á móti á þeim. Stöðvarnar hafa verið í rekstri frá árinu 1991, og var þá ætlað að taka á móti átta flokkum.“ Vegna þessara breytinga verða endurvinnslustöðvarnar í Jafnaseli og Dalvegi lokaðar þann 30. mars næstkomandi og opna aftur í nýrri mynd 31. mars.
Sorpa Kópavogur Reykjavík Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent