Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 07:34 Schmeichel-feðgarnir eiga það sameiginlegt að hafa orðið Englandsmeistarar. Nú gæti verið að fótboltaferli þeirra beggja sé lokið. Getty/Michael Regan Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel gæti hafa spilað sinn síðasta fótboltaleik. Hann ræddi um þetta ásamt pabba sínum, Manchester United goðsögninni Peter Schmeichel, í sjónvarpsútsendingu í gærkvöld. Pabbinn telur soninn hafa fórnað sér um of í landsleik.
Schmeichel yngri er 39 ára gamall og hefur leikið 120 A-landsleiki fyrir Danmörku, örlítið færri en pabbi hans, en getur ekki hjálpað Dönum í komandi umspili um að komast á HM í sumar. Kasper, sem er markvörður Celtic í Skotlandi en hefur á ferlinum meðal annars orðið Englandsmeistari með Leicester 2016, er nefnilega alvarlega meiddur í öxl. Hann þarf nú að fara í aðgerð sem kemur til með að halda honum frá keppni í 10-12 mánuði. „Ég gæti hafa spilað minn síðasta fótboltaleik. Ég hef verið fótboltamaður frá því að ég fæddist. Þessi hugsun eyðileggur mann. Það er mjög, mjög erfitt að skilja þetta núna,“ sagði Kasper í útsendingu CBS frá Meistaradeild Evrópu. “I could’ve potentially played my last football game.”Our guest reporter Kasper Schmeichel reveals that he has dislocated his shoulder, and torn his bicep, rotator cuff and labrum. The Dane opens up about requiring two surgeries that will keep him out for 10 to 12 months. pic.twitter.com/75fskUSAd2— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) March 17, 2026 Fórnaði sér í landsleik með brotna öxl Kasper stóð þar við hlið föður síns sem var ekki síður í áfalli: „Ég vil ekki að þetta endi svona – með svona meiðslum. Hann axlarbrotnaði fyrir ári síðan í leik fyrir Danmörku gegn Portúgal, þegar allar skiptingar höfðu verið notaðar. Hann hélt áfram því þetta var átta liða úrslit Þjóðadeildarinnar og varði vel. En auðvitað getur maður ekki spilað með brotna öxl – en hann gerði það og var frá í stuttan tíma á eftir. Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu slæmt það er fyrir markvörð að meiðast í öxl, í hvert skipti sem þú hendir þér á þá hlið, þá lendir þú á öxlinni,“ sagði Peter og hélt áfram. „Í leiknum gegn Stuttgart lentir þú [Kasper] aftur á öxlinni og þurftir að fá aðra sprautu, og það olli viðbrögðum sem við vildum ekki. Á mánudaginn fengum við slæmu fréttirnar – því þetta er virkilega slæmt. Ég hjálpa Kasper eins mikið og ég get, en auðvitað kemur þetta tilfinningalega högg eftir nokkra daga: „Vá, ferill Kaspers gæti verið á enda vegna þessa.““
Danski boltinn Skoski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira