Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. mars 2026 21:10 Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur trúlegra að peningastefnunefnd hækki stýrivexti í fyrramálið en ekki. Hann útilokar ekki að vextir verði haldnir óbreyttir en segir það geta bitið peningastefnunefndina í skottið að taka ekki í taumana fyrr en seinna.
Íslandsbanki og Landsbankinn hafa spáð hækkun upp á 0,25 prósentustig sem þýddi að meginvextir yrðu 7,5 prósent. Greiningar beggja banka röktu að verðbólgan væri hærri en gert hefði verið ráð fyrir og verðbólguhorfur ekki góðar. Fjármálaráðherra segir tvísýnt hver ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður á fundi nefndarinnar í fyrramálið. Ákvörðunin verður tekin í skugga versnandi verðbólguhorfa og ófriðar í Mið-Austurlöndum sem þrýstir olíuverði upp. Kólnun víða Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir Seðlabankann í snúinni stöðu. „Verðbólguþróunin hefur verið beint í fangið á honum og verðbólguvæntingar hafa líka verið að þróast með óhagstæðum hætti. Á sama tíma er að koma þessi skellur sem við vitum ekki hvað verður harður eða langvinnur en getur haft áhrif til frekari kælingar hér á sam tíma og við sjáum töluverða kólnun víða í hagkerfinu,“ segir Jón Bjarki og vísar þar til átakanna í Miðausturlöndum. Jón Bjarki segir að öllu jöfnu ættu átök úti í heimi ekki að hafa áhrif á ákvarðanir peningastefnunefndar en að væntingar um hækkun eða lækkun vaxta geti haft óbein en áþreifanleg áhrif á verðbólgu. „Þess vegna þurfa þau að taka það frekar með í reikninginn heldur en aðrir seðlabankar þar sem allir búast við að verðbólga verði 2 prósent eftir eitt og hálft, tvö ár,“ segir hann. Engin kreppa í aðsigi Aðspurður segir Jón Bjarki að ólíkar áherslur skýri það að Arion banki spái óbreyttum vöxtum en hinir viðskiptabankarnir hækkun. „Það eru sterk rök gegn því að hafa mikið aðhald í vöxtunum akkúrat þessa stundina en að sama skapi gild rök fyrir því að taka í hemlana núna frekar heldur en að þurfa að krossbremsa seinna. Við eigum það öll sameiginlegt að geta ekki útilokað hina afstöðuna. Ég er allavega þar. Þeir gætu vel haldið vöxtunum óbreyttum en mér finnst trúlegra að þeir hækki og það gæti bitið þá í skottið seinna meir ef þau taka ekki fast á málunum,“ segir Jón Bjarki. Finnurðu lykt af kreppu? „Ekki enn þá sem betur fer. Það er aðeins að skána núna útlitið fyrir útflutninginn merkilegt nokk. Og það er seigla í neyslu heimilanna sem er ákveðið áhyggjuefni fyrir Seðlabankann en á sama tíma til marks um að fólk er ekki í stórum stíl farið að búa við verulega skertan kost vegna þeirrar þróunar sem hefur verið. Góðu heilli held ég að þetta sleppi réttu megin við núllið, að ekki verði samdráttur þetta árið, atvinnuleysi aukist ekki úr hófi fram og að við eigum að geta komist í gegnum næstu misseri með lækkandi verðbólgu án þess að við þurfum verulegar þrengingar hjá almenningi og fyrirtækjum landsins,“ segir Jón Bjarki.
Seðlabankinn Íslandsbanki Verðlag Lánamál Fjármál heimilisins Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira