Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2026 17:01 Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir eru orðnar liðsfélagar hjá Häcken. Hammarby, lið Guðrúnar Arnardóttur, er talið einna líklegast til að veita Häcken keppni um sænska meistaratitilinn. Samsett/Getty Nú eru aðeins ellefu dagar þar til að ný leiktíð hefst í úrvalsdeild kvenna í fótbolta í Svíþjóð, þar sem íslenskar landsliðskonur koma til með að berjast um titilinn.
Svipað og tíðkast á Íslandi hafa fulltrúar fjölmiðla og þjálfarar liðanna í deildinni nú spáð fyrir um hvernig deildin muni enda. Því er spáð að Häcken muni verja titilinn, Malmö nái 2. sæti eftir að hafa sem nýliðar endað í þriðja í fyrra, og að Hammarby endi í 3. sæti. „Við sjáum til en við munum berjast um alla titla,“ sagði Guðrún Arnardóttir, landsliðsmiðvörður, við Fotbollskanalen. Hún tekur slaginn með Hammarby eftir að hafa komið til félagsins í vetur eftir stutt stopp í Portúgal. Áður varð Guðrún þrisvar sinnum Svíþjóðarmeistari með Rosengård. Í meistaraliði Häcken er áfram markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir sem nú ætti að fá fleiri tækifæri með liðinu eftir að Jennifer Falk var lánuð til Liverpool í janúar. Hin 18 ára Thelma Karen Pálmadóttir, sem lék sinn fyrsta A-landsleik í haust, kom svo til Häcken frá FH í vetur og hefur þegar skorað fyrir liðið í sænska bikarnum. Tvö lið falla beint niður úr deildinni í haust og þriðja neðsta liðið fer í umspil við lið úr næstefstu deild. Efsta liðið verður meistari og liðin í 2.-3. sæti komast einnig í Evrópukeppni. Spáin fyrir tímabilið 2026: 1. BK Häcken ------------------------- 2. Malmö FF 3. Hammarby ------------------------- 4. Djurgården 5. IFK Norrköping 6. AIK 7. Rosengård 8. Kristianstads DFF 9. Piteå IF 10. Vittsjö GIK 11. Växjö DFF ------------------------- 12. BP ------------------------- 13. Eskilstuna United 14. IK Uppsala
Sænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira